Viltu vera á skrá? Heilbrigðisgagnafræðingur með starfsleyfi
Landspítali er suðupunktur þekkingar, þróunar og þverfaglegrar samvinnu. Lögð er áhersla á fagmennsku, framþróun og stöðugar umbætur.
Í þessum starfaflokki er eingöngu ráðið í tímabundnar stöður s.s.
- Störf við verkefni sem standa í tvo mánuði eða skemur
- Störf við afleysingar sem ekki er ætlað að standa lengur en 12 mánuði samfellt
Við stefnum á að vera einn besti vinnustaður landsins sem býður upp á gott starfsumhverfi og samkeppnishæf kjör. Veitt er markviss og einstaklingshæfð aðlögun með reyndum sjúkraliðum.
Vilt þú taka þátt í vegferðinni með okkur?
Í boði eru störf vítt og breitt um spítalann. Hvar liggur þinn áhugi?
Vinsamlega skráið í "Annað" reitinn óskir um svið/deild.
Ath. allar ótímabundnar stöður eru auglýstar og það þarf að sækja um þær sérstaklega.
- Verkefni og ábyrgð eru mismunandi eftir deildum/ kjörnum
- Íslenskt starfsleyfi sem heilbrigðisgagnafræðingur
- Jákvætt viðmót, frumkvæði, þjónustulipurð og samskiptahæfni
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Upphafsdagur starfa sem og starfshlutfall er samkomulag.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Heilbrigðisgagnafræðingur