Sérfræðilæknir í innkirtla- og efnaskiptalækningum
Við leitum að áhugasömum og framsæknum sérfræðilækni til starfa í þverfaglegu teymi á innkirtladeild Landspítala. Auk klínískrar þjónustu er kennsla, umbótavinna og rannsóknir verðmætir þættir starfsins.
Innkirtladeild Landspítala er staðsett að Eiríksgötu 5 í Reykjavík í nýrri göngudeildar aðstöðu en sinnir einnig verkefnum á öðrum heilbrigðisstofnunum. Deildin skilgreinir sig sem öndvegissetur innkirtlafræða á Íslandi og er í fararbroddi hvað varðar nýjungar í heildrænni gildismiðaðri en jafnframt skilvirkri göngudeildarþjónustu við alla landsmenn.
Við viljum ráða skipulagðan, lausnamiðaðan einstakling með framúrskarandi samskiptahæfni sem á auðvelt með að vinna í teymi. Starfshlutfall er samkomulagsatriði þó fullt starf sé æskilegast. Starfið er laust nú þegar eða samkvæmt samkomulagi.
- Teymisvinna á göngudeildum innkirtlalækninga
- Ráðgjöf innkirtlalækninga
- Þátttaka í vaktþjónustu innkirtlalækninga
- Þátttaka í viðfangsefnum almennra lyflækninga
- Þátttaka í kennslu og rannsóknarstarfi
- Breið þekking og reynsla í almennum lyflækningum
- Breið þekking og reynsla í innkirtlasjúkdómum
- Teymishugsun og samskiptafærni
- Frumkvæði og áhugi á að þróa gildismiðaða heilbrigðisþjónustu
- Sérfræðileyfi í almennum lyflækningum með innkirtlalækningar sem undirsérgrein
Frekari upplýsingar um starfið
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af námsgögnum og starfsleyfum.
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum.
- Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið.
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed.
- Afrit af umsókn um læknisstöðu hjá Embætti Landlæknis skal fylgja með umsókn. Umsækjandi sækir skjalið hér og vistar, fyllir það út og sendir með umsókn.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingr: Heilbrigðisþjónusta, sérfræðilæknir, læknir