Skrifstofustjóri í geðþjónustu Landspítala
Við viljum ráða til starfa einstakling sem hefur áhuga á fjölbreyttu starfi í krefjandi þverfaglegu umhverfi. Viðkomandi mun hafa umsjón með margvíslegum verkefnum á skrifstofu geðþjónustu Landspítala.
Við sækjumst eftir einstaklingi sem er lausnamiðaður og með framúrskarandi samskiptahæfni til að sinna ýmsum verkefnum er lúta meðal annars að vinnu lækna og móttöku nema, samskiptum við sjúklinga, starfsfólk og aðrar stofnanir og margvísleg önnur verkefni. Starfið er laust 1. september 2022 eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Umsjón með vinnuskipulagi, vaktaskrá og vinnutímaskráningu sérfræðilækna
- Móttaka læknanema og nýráðinna lækna
- Aðstoð við skipulagningu kennslu og vísindastarfa á vegum sérgreinarinnar
- Ýmiss umsýsla sem tengist sérgreininni
- Upplýsingagjöf og samskipti við t.a.m. sjúklinga, starfsfólk og stofnanir
- Ýmis verkefni fyrir forstöðumann geðþjónustu og þátttaka í ýmsum sérverkefnum
- Umsjón og umsýsla með ábendingum notenda og aðstandenda um þjónustu geðþjónustu
- Heilbrigðisritaranám, ritaranám, stúdentspróf eða annað sambærilegt nám
- Frumkvæði, skapandi hugsun og faglegur metnaður í starfi
- Skipulögð og nákvæm vinnubrögð
- Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskiptahæfni
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Framúrskarandi tölvukunnátta
- Hæfni og geta til að starfa í teymi
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisgagnafræðingur, skrifstofustarf, skrifstofustjóri