Framlengdur frestur rennur út til að tilnefna heiðursvísindamann Landspítala 2021.
Tilnefna má þá sem hafa aðalstarf sitt á Landspítala og hafa ekki áður verið heiðraðir með titlinum. Vísindaráð hvetur þá sem eru í aðstöðu til að meta störf einstakra vísindamanna á Landspítala til að senda inn tilnefningar. Heimilt er að tilnefna sjálfan sig og er sérstaklega hvatt til þess.