Árlegri þjónustukönnun sjúklinga á Landspítali lýkur. Í úrtaki er hluti þeirra sjúklinga sem útskrifaðist af spítalanum nýverið (febrúar, mars og apríl 2020).
Þeir fengu sent bréf með boði um þátttöku og lykilorð að könnuninni sem er rafræn.
Tilgangur könnunarinnar er að afla upplýsinga um viðhorf sjúklinga til þjónustu spítalans og nota niðurstöðurnar til þess að bæta hana.
Landspítali er þakklátur svörum þeirra sem taka þátt enda eru upplýsingar af þessu tagi mjög mikilvægar fyrir spítalann.