kl. 15:00-17:00
Fimm ár er liðin frá stofnfundi Spítalans okkar og af því tilefni efna samtökin til málþings þar sem litið verður yfir farinn veg en fyrst og fremst horft til framtíðar og þeirra tækifæra sem nýtt þjóðarsjúkrahús hefur í för með sér fyrir starfsemi Landspítala og heilbrigðisþjónustuna í landinu.
Yfirskrift málþingsins er Uppbygging Landspítala: Menntun, vísindi og nýsköpun í heilbrigðisþjónustu.
Sérstakur gestur málþingsins verður Charlotta Tönsgård, framkvæmdastjóri og stofnandi heilbrigðistæknisprotans „Kind App“.
Kind App er nútíma samskiptaleið til að miðla þekkingu til notenda heilbrigðisþjónustu og milli starfsfólks.