Árlega er haldin ráðstefna á vegum Landspítala þar sem kynntar eru rannsóknir og verkefni sem unnin hafa verið í tengslum við bráðaþjónustu á Íslandi. Hefð hefur skapast fyrir því að fá innlenda og erlenda sérfræðinga til að kynna störf sín, verkefni og rannsóknir tengd þema dagsins.
Bráðadagurinn 2020 verður haldinn 6. mars 2020 á Hotel Natura undir yfirskriftinni " Í upphafi skal endinn skoða ".
Í meðfylgjandi auglýsingu er óskað eftir ágripum fyrir Bráðadaginn. Ágripin geta haft víða skírskotun til yfirskriftarinnar.
Til að fá sem fjölbreyttasta umfjöllun værum við þakklát fyrir að þið vekið athygli samstarfsfólks ykkar á þessari auglýsingu, með tölvupósti, veggspjöldum eða með kynningu á innri vef ykkar.
Ráðstefnan er öllum opin
Nánari upplýsingar:
Ágústa Hjördís Kristinsdóttir, formaður bráðadagsnefndar, ahjordis@landspitali.is s. 543 7913
Dagný Halla Tómasdóttir, skrifstofustjóri, dagnyht@landspitali.is . 543 8215