Jafnréttisnefnd Landspítala heldur hádegisfund um jafnréttismál föstudaginn 21. febrúar 2020 kl. 12.00-13.00.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri heldur fyrirlesturinn Jafnréttisvegferð lögreglunnar: Pælingar og praktík. Eftir erindið verða umræður. Fundinum verður streymt á samfélagsmiðlum Landspítala.