Kl. 15:00-17:30
Í tilefni starfsloka Gísla H. Sigurðssonar, prófessors í svæfinga-og gjörgæslulækningum við Háskóla Íslands og við Landspítala, verður haldið málþing honum til heiðurs.
Gísli H. Sigurðsson var ráðinn fyrsti prófessor í svæfinga-og gjörgæslulækningum við Háskóla Íslands og forstöðulæknir við Landspítala árið 2000, eftir að hafa gegnt stöðu prófessors við Háskólann í Bern fyrir þann tíma. Hann hefur verið mjög virkur í kennslu læknanema, þróun sérnámskennslu á Íslandi og skandinavísku samstarfi á sviði kennslu og vísinda. Gísli varð sjötugur í janúar síðastliðnum og lauk þá störfum sem prófessor. Hann hefur þó gegnt hlutastarfi við Landspítala síðan og komið að skipulagningu samnorræns framhaldsnáms í gjörgæslulækningum og íslensku samþættu kjarnanámi í bráðagreinum lækninga (SKABL) auk þess að sinna vísindum og ritstjórnarstörfum.