Framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala - háskólasjúkrahúsi hefur veitt Reyni Tómasi Geirssyni prófessor leyfi frá störfum sviðsstjóra til að einbeita sér að störfum deildarforseta í Læknadeild Háskóla Íslans. Í framhaldi af því hefur Jón Hilmar Alfreðsson yfirlæknir verið valinn sviðsstjóri til þriggja ára. Undir hann fellur rekstrarleg yfirstjórn og ábyrgð á kvennasviði með tilliti til lækninga ásamt almennri faglegri ábyrgð á rekstrinum Hann mun starfa samkvæmt sömu starfslýsingu og öðrum sviðsstjórum er sett. Reynir Tómas Geirsson vinnur að uppbyggingu rannsókna og fræðastarfsemi á kvennasviði í samráði við sviðsstjóra sviðsins, Jón Hilmar Alfreðsson og Margréti Hallgrímsson og tekur þátt í faglegri stefnumótun með þeim. Í fjarveru Jóns Hilmars sviðsstjóra gegnir Reynir Tómas störfum fyrir hann. Undir þetta samkomulag um sviðsstjórn á kvennasviði skrifuðu Jóhannes M. Gunnarsson framkvæmdastjóri lækninga, Magnús Pétursson forstjóri, Jón Hilmar Alfreðsson yfirlæknir og Reynis Tómas Geirsson prófessor.
Sviðsstjóraskipti á kvennasviði
Reyni Tómasi Geirssyni hefur veirð veitt leyfi frá störfum sviðsstjóra á kvennasviði til að gegna starfi deildarforseta læknadeildar. Jón Hilmar Alfreðsson verður sviðsstjóri í hans stað.