Halla Ósk Halldórsdóttir, ljósmóðir á fæðingarvakt, var heiðruð á ársfundi Landspítala í vor í flokknum Öryggi.
Halla Ósk hefur verið í forsvari fyrir námskeið sem heita PROMPT en þau miða að því að þjálfa lækna, ljósmæður, hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða í bráðatilfellum í fæðingarþjónustu. Þá hefur Halla Ósk kennt deildarlæknum, læknanemum og ljósmæðranemum um hvaðeina sem tengist fæðingum, sérstaklega lestur fósturhjartsláttarrita.
Úr tilnefningu: „Halla stendur framarlega í starfi við sí- og endurmenntun ljósmæðra í skipulagi og kennslu við PROMPT-námskeiðin í tengslum við meðgöngu, fæðingu og sængurlegu, svo og við umönnun nýbura. Hún er einnig mikil og góð fyrirmynd sem ljósmóðir á 23B.“
Heiðrað er í flokkum sem samsvara gildum spítalans: Umhyggja, fagmennska, öryggi og framþróun. Að auki er heiðrað í flokknum Vinnustaðurinn okkar þar sem heiðraðir eru traustir vinnufélagar sem gera vinnudaginn betri.
Fjölmargar tilnefningar bárust en það er ekki aðeins samstarfsfólk sem getur tilnefnt heldur einnig sjúklingar, aðstandendur og sjúklingasamtök.
Þeir einstaklingar sem voru heiðraðir í ár fengu verkið Á eftir listakonuna Ástu Fanneyju Sigurðardóttur.
Ásta Fanney er talin einn af fremstu gjörningalistamönnum landsins. Hún hefur sýnt og flutt verk sín á söfnum og hátíðum víða um heim og verður fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum í myndlist árið 2026 en tvíæringurinn er talinn einn mikilvægasti vettvangur samtímalistar á heimsvísu.
Verkið Á er prentverk í ótakmörkuðu upplagi en hvert verk er þó einstakt þar sem Ásta stimplar árfarveginn á hvert verk fyrir sig. Þar sem áin endar á hverju blaði tekur hún við á því næsta og þannig flæðir hún áfram í gegnum verkin. Verkið á rætur sínar í gjörningi sem Ásta sýndi á samtímalistasafninu í Tókýó árið 2023.