Þórhildur útskrifaðist úr hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2001. Hún hóf störf á Landspítalanum eftir útskrift og lengst hefur hún starfað á Speglunardeild, sem hjúkrunarfræðingur frá 2008 og sem deildarstjóri frá 2015
Þórhildur er með mikla reynslu og faglega þekkingu á sviðinu og hefur tekið þátt í fjölmörgum gæða- og umbótaverkefnum. Þar má helst nefna þróun hjúkrunar á deildinni, móttöku og þjálfun nýrra starfsmanna sem og endur- og símenntun starfsmann og uppbygging á nýrrar speglunareiningar NLSH.
Þórhildur er með viðbótar diplóma í opinberi stjórnsýslu frá Háskóla Íslands og er að klára meistaranám í stjórnun í heilbrigðisþjónustu frá Háskólanum á Akureyri.
„Speglunardeild Landspítala er stærsta og sérhæfðasta speglunardeild landsins og sinnir sjúklingum alls staðar af á landinu. Gríðarleg aukning hefur verið á starfseminni og bendir allt til þess að það haldi áfram. Það er heiður að fá tækifæri til að leiða það krefjandi verkefni áfram í samvinnu við það öfluga fagfólk sem við deildina starfar. Samstíga getum við sem teymi veitt framúrskarandi og faglega þjónustu til okkar skjólstæðinga og þannig tekið þátt í að styðja við það öfluga starf sem Landspítalinn þjónar.“