Frá árinu 2003 hefur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands staðið myndarlega að því að efla hreyfingu og starfsanda á vinnustöðum með heilsu- og hvatningarverkefninu „Hjólað í vinnuna“.
Markmið átaksins er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta.
Á Landspítala eru fjölmörg sem ferðast reglulega á hjóli til og frá vinnu og lét starfsfólk ekki sitt eftir liggja þá daga sem átakið stóð yfir.
30 lið frá Landspítala tóku þátt og voru hjólaðir rúmlega 7.000 kílómetrar á 20 dögum.
XL stelpur fengu verðlaun fyrir hlutfallslega flesta daga meðal liða innan Landspítala í fyrirtækjakeppni ÍSÍ 2025 og voru með 14,33 daga.
11B fengu verðlaun fyrir hlutfallslega flesta kílómetra meðal liða innan Landspítala í fyrirtækjakeppni ÍSÍ 2025 og voru með 119,04 hjólaða kílómetra.
Fartölvurnar voru dregin út af hinum liðunum sem skráðu einhverja daga og fengu þau þátttökuverðlaun.
Yfirlit og tölfræði yfir alla vinnustaði má sjá hér.
Úrslit liða Landspítala má sjá hér.