Karl Andersen, formaður Vísindaráðs, setti athöfnina og Alma Möller heilbrigðisráðherra, Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, og Unnur A. Valdimarsdóttir, forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands, héldu stutt ávörp.
Martin Ingi Sigurðsson, prófessor og yfirlæknir í svæfinga- og gjörgæslulækningum, hlaut sjö milljóna króna verðlaun úr Verðlaunasjóði í læknisfræði og skyldum greinum, ein stærstu verðlaun sem veitt eru íslenskum vísindamönnum. Sjóðurinn var stofnaður fyrir tæpum 40 árum af Árna Kristinssyni og Þórði Harðarsyni, sem báðir voru lengi yfirlæknar á Landspítala og prófessorar við Háskóla Íslands. Þetta var í tólfta sinn sem veitt voru verðlaun úr Verðlaunasjóðnum.
Þá veitti vísindasjóður Gísla Einarssonar, fyrrverandi yfirlæknis og framkvæmdastjóra kennslu, vísinda og þróunar á Landspítala, og Sigurlaugar Sveinbjörnsdóttur taugalæknis, slagteymi Landspítala níu milljóna króna styrk. Í sjóðinn höfðu safnast þær greiðslur sem Gísli og Sigurlaug fengu fyrir rannsóknir sínar á heilablóðfalli á árunum 1995-2000.
Veittir voru tvenns konar styrkir úr Vísindasjóði Landspítala 2025: hvatninga- og verkefnastyrkir. Hvatningastyrki hlutu Hans Tómas Björnsson, Magnús Gottfreðsson, Siggeir Fannar Brynjólfsson og Sigríður Gunnarsdóttir og hlutu alls 66 vísindaverkefni almennan vísindastyrk. Heildarlista yfir styrkhafa og verkefni má sjá hér.
Heiðursvísindamaður og ungur vísindamaður
Á Vísindum á vordögum er ætíð tilkynnt um heiðursvísindamann Landspítala og ungan vísindamann Landspítala. Björn Guðbjörnsson, prófessor í gigtarrannsóknum við læknadeild Háskóla Íslands, var útnefndur heiðursvísindamaður Landspítala og Freyja Jónsdóttir, klínískur lyfjafræðingur við Landspítala og lektor við lyfjafræðideild Háskóla Íslands, var útnefnd ungur vísindamaður Landspítala.
Það var sérlega ánægjulegt að sjá fjölda veggspjalda á ganginum fyrir utan Hringsal en alls 55 veggspjöld skreyttu veggi gangsins. Fjórir vísindamenn voru verðlaunaðir fyrir sín veggspjöld sem þeir kynntu í sal og í beinu streymi frá hátíðinni.
Auður Anna Aradóttir Pind - Kítósan afleiður auka mótefnasvar eftir bólusetningu gegn pneumókokkum í nýburamúsum
Jenny Molina - Dose sparing effects of novel adjuvants and alum on two different vaccines in a neonatal mouse model
Kevin Ostacolo - Ribosome and Splicing-Based Regulation of the Mild Hypothermia Response
Sæmundur Rögnvaldsson - Fyrri greining góðkynja einstofna mótefnahækkun og aðdragandi mergæxlisgreiningar: Slembiröðuð rannsókn.