Rafn lauk kandídatsprófi í læknisfræði 1987 og diplómanámi í opinberri stjórnsýslu 2020 frá Háskóla Íslands. Hann nam lyf- og innkirtlalækningar við Western General Hospital og Royal Infirmary í Edinborg í Skotlandi frá 1990 og lauk doktorsprófi frá Háskólanum í Edinborg 1995. Hann starfaði síðan sem lektor í Edinborg til 1998 en eftir heimkomu hefur hann starfað á Landspítala sem sérfræðilæknir, yfirlæknir og nú síðast sem forstöðulæknir BLE.
Rafn varð dósent við læknadeild Háskóla Íslands 1999, prófessor 2009 og hefur verið forstöðumaður fræðigreinarinnar innkirtlalæknisfræði frá 2012. Rafn hefur birt fjölda vísindagreina og tekið virkan þátt í ýmsum vinnuhópum, nefndum og fagfélögum á sviði lyf- og innkirtlalækninga.
„Þetta starf er mjög spennandi og verður krefjandi í ljósi stórra verkefna framundan eins og flutnings í nýjan meðferðarkjarna. Það er einnig deginum ljósara að við þurfum að hugsa heilbrigðisþjónustu framtíðarinnar með nýjum hætti, en þar verða lykilorðin teymisvinna, nýsköpun og tækni. Aðalatriðið verður þó að miða þjónustuna við þarfir og sjónarhól skjólstæðinga okkar.“