Lengi hefur verið köllun eftir slíkri þjónustu en árið 2022 mat ráðgjafahópur félags- og tryggingamálaráðherra svo að skortur væri á geðheilbrigðisþjónustu fyrir eldri einstaklinga. Veruleg breyting er að eiga sér stað á aldurssamsetningu þjóðarinnar og eldri einstaklingum fer fjölgandi. Eru þetta einstaklingar sem oft hafa flókinn og fjölþættan heilbrigðisvanda og flókna lyfjasögu sem krefst heildrænnar og þverfaglegrar nálgunar.
Öldrunargeðteymið er þverfaglegt teymi sem samanstendur af öldrunargeðlækninum Thomasi Brieden, sálfræðingnum Kötlu Marín Stefánsdóttur, geðhjúkrunarfræðingnum Guðríði Ringsted og hjúkrunarfræðingnum Jökli Mána Þrastarsyni. Teymið leggur mikið uppúr því að veita sérhæfða og einstaklingsmiðaða geðþjónustu við aldraða einstaklinga með geðraskanir.
Fyrst um sinn mun öldrunargeðteymið sinna sérhæfðri ráðgjöf en með tímanum er það vonin að hægt verði að efla og þróa teymið í átt að göngudeildarþjónustu og að auka samstarf við aðrar heilbrigðisstofnanir. Til að óska eftir þjónustu öldrunargeðteymisins er hægt að senda beiðni um ráðgjöf í Heilsugátt, velja þar Geðlækningar og stíla á Thomas Brieden.
Í meðfylgjandi myndbandi er rætt við Guðríði Ringsted, teymisstjóra í öldrunargeðteymi og geðhjúkrunarfræðing, og Thomas Brieden öldrunargeðlækni um þjónustuna.