Vicente Sánchez-Brunete Ingelmo hefur verið ráðinn yfirlæknir bráðaþjónustu utan sjúkrahúsa frá 1. júní 2023.
Vicente lauk læknisfræði frá Complutense de Madrid árið 1991, sérfræðinámi í bráðalækningum 1998 frá sama skóla, námi í humanitarian medicine 2006 og stjórnunarnámi í heilbrigðisþjónustu árið 2015 frá háskólanum Alcala de Henares á Spáni.
Vicente hóf störf sem læknir hjá varnarmálaráðuneytinu á Spáni árið 1992 en starfaði við bráðaþjónustu utan sjúkrahúsa frá árinu 1998 í Madrid á Spáni, fyrst sem sjúkrabílalæknir og frá 2004 sem yfirlæknir utan spítalaþjónustu í Madrid. Vicente hóf störf sem læknir á Landspítala í ágúst 2014 og hefur starfað sem sérfræðingur í bráðalækningum frá 2016.
Vicente hefur tekið þátt í starfi Rauða krossins á hamfarasvæðum og hefur auk þess að starfa í klínískri starfsemi, sinnt kennslu, rannsóknum og útgáfu.