Sandra Gestsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri verkefnastofu Landspítala frá 1. júní 2023.
Verkefnastofa styður við lykilverkefni framkvæmdastjórnar Landspítala og vinnur með stjórnendum og starfsfólki að umbótum á spítalanum þvert á starfsemina. Unnið er út frá hugmyndafræði straumlínustjórnunar og skilvirk verkefnastjórnun höfð að leiðarljósi.
Sandra Gestsdóttir lauk M.Sc. prófi í lyfjafræði frá Háskóla Íslands árið 2009 og M.Sc prófi í sameindalíftækni frá Kungliga Techniska Högskolan í Stokkhólmi 2011. Hún var við verkefnastjórnun hjá Actavis ehf. á árunum 2013 til 2015 og í sambærilegum störfum hjá Össuri Iceland ehf. frá 2015 og þar til nú.