Landspítali er á neyðarstigi
Í dag liggja 55 sjúklingar með COVID á Landspítala, 53 þeirra í einangrun, 3 eru á gjörgæslu, 2 í öndunarvél og einangrun. Áfram er mikið um greiningar á bráðamóttöku og hjá innlögðum sjúklingum og eru COVID sjúklingar nú á 13 deildum. 8 bættust í hópinn í gær og 11 fóru úr honum.
Starfsfólk í einangrun er 241 talsins.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.
- Landspítali beinir því til almennings að hringja ekki á deildir spítalans í leit að upplýsingum um viðbrögð vegna COVID-19. Bent er á símanúmerið 513 1700 þar sem er netspjall Heilsuveru með upplýsingum og ráðgjöf um COVID-19. Upplýsingar er einnig að fá á vefjum Landspítala, Embættis landlæknis og á www.covid.is.
- Minnt er á að Landspítali er á neyðarstigi og af þeim sökum eru enn í gildi umfangsmiklar sýkingavarnir á spítalanum, þar á meðal er algjör grímuskylda og heimsóknarbann nema með sérstökum undantekningum.