Landspítali er á hættustigi
Í dag kl. 9 lágu 16 sjúklingar með COVID á Landspítala. 11 eru á smitsjúkdómadeild, þrír á gjörgæslu í öndunarvél og tveir eru á geðdeild en þar greindist annar sjúklingur í gær.
Í eftirliti COVID göngudeildar eru nú 1.508 manns sem er mesti fjöldi frá upphafi. Þar af eru 350 börn. Ríflega 40 manns eru í sérstöku eftirliti.
Í gær greindist metfjöldi smita frá upphafi - 200 smit alls. Álag á COVID göngudeild og rakningateymi spítalans er orðið gríðarlegt.
- Farsóttanefnd hefur miklar áhyggjur af stöðunni og álítur að herða þurfi takmarkanir í samfélaginu strax, ef takast eigi að ná utan um þessa bylgju. Þegar smit er jafn útbreitt og raun ber vitni um eru margfaldar líkur á að fá smit inn í starfsemi Landspítala með starfsmönnum, sjúklingum og gestum. Því er nauðsynlegt að takmarka umferð um spítalann eins og hægt er með því að leysa mál í gegnum síma og fjarfundi þar sem því verður við komið.
- Starfsmenn skulu skipuleggja alla fundi sem mögulegt er sem fjarfundi. Eingöngu skal hafa staðfundi þegar nauðsyn krefur. Áhersla hefur verið á að halda verklegri kennslu óbreyttri og er því beint til skipuleggjenda fræðslu og kennslu að hafa fjarfundi þar sem því verður við komið, a.m.k. fyrir hluta hópsins, auk þess að virða grímuskyldu og fjarlægðamörk.
- Minnt er á að skima alla sjúklinga sem leggjast inn í gegnum bráðamóttökur. Ef það er ekki gert á bráðamóttöku þá þarf viðkomandi legudeild að gera það sem fyrst eftir innlögn.
- Vegna anna við úthringingar, rakningar og tengd verkefni eru yfirmenn þeirra sem manna þessa pósta beðnir um að taka öll önnur verkefni af þessum lykilstarfsmönnum svo þeir geti einbeitt sér að þessu brýna og umfangsmikla verkefni sem baráttan við COVID er.
- Matsalir og kaffistofur eru sérstakt áhyggjuefni núna. Almennt er í gildi á Landspítala eins metra regla NEMA þegar gríma er tekin niður til að matast en þá gildir tveggja metra regla án undantekninga.
- Í fyrradag kom upp smit hjá inniliggjandi sjúklingi í geðþjónustu og hefur verið skimað vítt í kringum viðkomandi. Í gær greindist annar sjúklingur á sömu deild og alls fimm starfsmenn. Í dag eru áframhaldandi skimanir og rakning. Ein geðdeild er því lokuð fyrir innlagnir og önnur er í sóttkví að hluta.
- Farsóttanefnd vill eindregið ráðleggja þeim sem eru að ráðgera samkomur samstarfsmanna á aðventu eða í öðru samhengi að bíða með það á meðan við erum að fara í gegnum erfiðasta hjallann í þessari gríðarstóru smitbylgju. Það hefur sýnt sig að þrátt fyrir að fólk vandi sig og taki hraðpróf getur samt orðið mikil smitdreifing á slíkum skemmtunum.