Frá farsóttanefnd Landspítala:
Í dag, 11. nóvember 2021, greindist Covid smit hjá inniliggjandi sjúklingi á heila- og taugaskurðdeild B6 í Fossvogi og er lokað fyrir innlagnir á deildinni til morguns. Tekin verða sýni hjá öllum sjúklingum og starfsmönnum en rakning stendur yfir. Haft verður samband við alla sem eiga að fara í sýnatöku en ef einhver vill gefa sig fram sem er ekki hluti af föstu starfsliði deildarinnar þá er bent á netfangið rakning@landspitali.is.
Upplýsingum um framvindu rakningar og niðurstöður sýnatöku verður miðlað eftir því sem málinu vindur fram.
Sjúklingurinn var færður á smitsjúkdómadeild og stofufélagi settur í sóttkví. Aðrir sjúklingar eru í úrvinnslusóttkví.