Mikil fjölgun fólks með COVID-19 smit kallar á fjölgun á bakvarðalista Landspítala. Allt síðan faraldurinn hófst hafa margir verið á þessum lista og reynst spítalanum og samlöndum sínum ákaflega vel þegar til þeirra hefur þurft að leita.
Núna er staðan sú að það bráðvantar fólk á bakvarðalistann. Landspítali heitir á fólk í öllum fagstéttum heilbrigðiskerfisins að skrá sig á bakvarðalistann og bregðast vel við ef til þess er leitað um vinnuframlag í baráttunni við þennan illa vágest sem COVID-19 er.
Ég vil skrá mig á bakvarðalistann