Landspítali er á hættustigi, sem er annað af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining hættustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi:
Orðinn atburður sem kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlunum. Fjöldi þolenda af þeirri stærðargráðu að aukið álag skapast á ýmsar deildir (gulur litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd daglega.
Staðan kl. 12
20 sjúklingar liggja á Landspítala með COVID, þar af 2 á gjörgæslu og 1 í öndunarvél.
Alls hafa 49 sjúklingar lagst inn á Landspítala með COVID í fjórðu bylgju faraldursins. Um þriðjungur þeirra er óbólusettur. Fimm hafa þurft gjörgæslustuðning.
Nú eru 1.385, þar af 268 börn í COVID göngudeild spítalans og hefur fækkað nokkuð. Enginn er á rauðu en 46 einstaklingar flokkast gulir og þurfa nánara eftirlit.
Sérstakar tilkynningar
1. Minnt er á heimsóknartakmarkanir á Landspítala, sem eru strangar í ljósi faraldurs COVID-19 í samfélaginu. Sjá nánar hér.