Nýtt veirugreiningartæki sýkla- og veirufræðideildar Landspítala er nú komið í fulla notkun. Sú starfsemi sem deildin hefur verið með hjá Íslenskri erfðagreiningu fluttist öll í aðstöðu deildarinnar við Ármúla mánudaginn 22. febrúar 2021.
Tækið getur nýst til viðtækra veirurannsókna, til dæmis við skimun blóðgjafa og líffæragjafa, greiningu HIV og lifrarbólgu, greiningu kynsjúkdóma svo sem HPV, í undirbúningi fyrir líffæraígræðslur og svo til greiningar á öndunarfærasýkingum, meðal annars berklum.
Veirugreiningartækið er bylting fyrir greiningar- og afkastagetu sýkla- og veirufræðideildar og Íslendinga þar með. Að undanförnu hafa farið fram prófanir á tækinu, verkferlum og hugbúnaði. Undirbúningsferlið hefur verið mjög umfangsmikið enda nærri tuttugu starfsmenn sem flytjast á milli starfsstöðva og koma til með að vinna í tengslum við tækið í nýuppgerðri aðstöðu í Ármúlanum.
Greiningartækið er næstum alsjálfvirkt og mjög afkastamikið. Það getur greint allt að 960 sýni á 8 klukkustundum. Til þessa hefur sýkla- og veirufræðideild ekki haft yfir að ráða nægjanlega öflugum og hraðvirkum búnaði til að takast á fullnægjandi hátt við kórónuveiruna sem veldur Covid-19. Nú er hins vegar orðin breyting þar á og ekki þarf að leita til Íslenskrar erfðagreiningar með aðstoð eins og verið hefur. Hægt er að keyra PCR-greiningar fyrir mörgum tegundum samtímis og niðurstöður koma eftir 3-4 klukkustundir.
Greiningartækið er frá Roche og heitir Cobas 8800.