Frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd:
Landspítali er á neyðarstigi
1. Aflétting neyðarstigs á Landspítala
Landspítali hefur hafið undirbúning afléttingar neyðarstigs sem lýst var yfir 25. október 2020 og stefnt er að því að færa spítalann á hættustig á morgun, 12. nóvember. Forsendur þessa er það mat viðbragsstjórnar og farsóttanefndar að tök hafi náðst á faraldri COVID-19 sem upp kom á Landakoti og spítalinn sé í stakk búinn til að starfa á hættustigi. Hættustig er skilgreint með eftirfarandi hætti: Orðinn atburður sem kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlun. Fjöldi þolenda af þeirri stærðargráðu að aukið álag skapast á ýmsar deildir.
Áfram eru því í gildi allar takmarkanir og ítrustu varúðarráðstafanir skv. gildandi reglum og leiðbeiningum um sýkingavarnir.
2. Á Landspítala eru nú:
66 sjúklingar inniliggjandi vegna COVID19, þar af 37 í einangrun
165 sjúklingar alls frá upphafi þriðju bylgju faraldursins
- Þar af eru nú 2 sjúklingar á gjörgæslu og báðir í öndunarvél
14 andlát hafa orðið á Landspítala í þriðju bylgju
471 sjúklingur er í eftirliti Covid-19 göngudeildar, þar af 70 börn
114 starfsmenn LSH eru skráðir í einangrun (41) eða sóttkví (A:23 B:27 C:23)