Starfsmenn Landspítala sem komu frá Ítalíu frá og með 29.02.2020 kl. 08:00 (óháð því hvaða leið viðkomandi kom til landsins) verði í heimasóttkví í 14 daga frá heimkomu. Næsti yfirmaður viðkomandi skal upplýsa starfsmannaheilsuvernd um tilfelli í sóttkví, á netfangið starfsmannahjukrun@landspitali.is.
Starfsmenn Landspítala sem komu frá Ítalíu á tímabilinu 22.02.2020-28.02.2020 og hafa verið í vinnu mega vinna áfram ef þeir eru einkennalausir. Starfsmenn þurfa að fylgjast með einkennum sem geta bent til Covid-19 s.s. hiti, hósti, mæði, hálssærindi, skyndileg almenn vanlíðan (s.s. höfuðverkur, slappleiki, beinverkir).
Ef starfsmaður í heimasóttkví fær einkenni sem geta bent til Covid-19 skal hann hafa samband við starfsmannahjúkrunarfræðing Landspítala í netfang starfsmannahjukrun@landspitali.is eða í síma 543 1330 á dagvinnutíma.
Ef starfsmaður greinist með Covid-19 skal hann láta sinn yfirmann vita. Um leið og starfsmaður hefur greinst með Covid-19 þarf að upplýsa sýkingavarnadeild, á netfangið sykingavarnadeild@landspitali.is
Starfsmenn Landspítala sem koma erlendis frá, frá og með 29.02.2020 kl. 08:00 – og eru með einkenni sem geta bent til COVID-19 skulu hafa samband við starfsmannahjúkrunarfræðing Landspítala í netfang starfsmannahjukrun@landspitali.is eða í síma 543 1330 á dagvinnutíma, burtséð frá því hvaðan þeir eru að koma.