Tilmæli frá starfsfólki Landspítala til gesta spítalans:
Árlega koma upp faraldrar ýmissa niðurgangspesta og inflúensu sem ganga milli manna. Heilbrigðir einstaklingar verða misjafnlega mikið veikir og jafna sig oftast fljótlega en geta verið smitandi í nokkra daga. Á sjúkrahúsum liggja sjúklingar sem geta verið mjög viðkvæmir fyrir þessum sýkingum og verða því oft alvarlega veikir ef þeir smitast.
Ef fólk hefur verið með niðurgang, uppköst eða einkenni eins og beinverki, höfuðverk eða hita undanfarna tvo sólarhringa er beðið um að fresta heimsókn á spítalann.
Með þessu viljum við vernda sjúklinga sem gætu smitast.
Upplýsingar um inniliggjandi aðstandanda er hægt að fá á viðkomandi deild með því að hringja í síma spítalans - 543 1000.