Kæra samstarfsfólk!
I.
Sá vandi heilbrigðiskerfisins sem birtist skýrast á bráðamóttöku okkar í Fossvogi hefur verið í umræðunni sem aldrei fyrr undanfarnar vikur. Tilkynnt var fyrir viku um stofnun átakshóps til að greina og vinna að bráðalausnum fyrir hana. Sá hópur á að ljúka störfum á 4 vikum og vinna hans er komin vel af stað. Á næstu dögum verða skipaðir undirhópar innan spítalans og verður spennandi að sjá hvað vinnan leiðir í ljós.
II.
Í vikunni hafa hinir árlegu Læknadagar farið fram. Um er að ræða gríðarmikilvægan fræðslu- og umræðuvettvang lækna og reyndar heilbrigðiskerfisins alls. Mörg málþing og erindi hafa beinst að mikilvægi jafnvægis í lífsháttum sem lykils að öllu heilbrigði, ekki síst andlegu. Rétt mataræði, hreyfing, hæfilegt álag og tími til að sinna fjölskyldu og hugðarefnum eru ekki síður mikilvægir þættir en öflug heilbrigðisþjónusta. Þingið skilur okkur eftir með nýja þekkingu og hugmyndir sem eiga eftir að hafa áhrif á það hvernig við hugsum um heilbrigði og heilbrigðisþjónustu á næstu árum. Það er aðalsmerki góðrar fræðslu og umræðu.
III.
Nú er að ljúka framsæknu tilraunaverkefni á deild A4 hjá Landspítala Fossvogi en það er háls-, nef- og eyrna-, lýta-, bruna- og æðaskurðdeild. Um er að ræða þráðlausa vörpun á upplýsingum úr mælitækjum beint inn í sjúkraskrá. Tímasparnaðurinn og hagræðingin er ótvíræð en áætlað er að fyrsti fasi verkefnisins spari Landspítala um 82 klukkustundir á sólarhring, sem eru allnokkuð.
Verkefnið snýst þó ekki síður um aukin gæði upplýsinga og enn meira öryggi fyrir sjúklinga. Það er keyrt áfram í góðu samstarfi heilbrigðis- og upplýsingatæknideildar (HUT) og gæðadeildar en hún tilheyrir skrifstofu framkvæmdastjóra hjúkrunar og lækninga.
Til að byrja með er verkefnið innleitt fyrir 43 mæla á A4 og víðsvegar annars staðar á spítalanum. Í seinni fasa bætast 65 mælar við. Velgengni verkefnisins gefur vonir um að álíka tækifæri leynist víðar á spítalanum. Mikill ávinningur er fólginn í því að útrýma handskráningu gagna inn í sjúkraskrá. Þess má til gamans geta að í þessari tilteknu þróun skipar Landspítali sér í fremstu röð framsækinna sjúkrahúsa á Norðurlöndum og þar með á heimsvísu.
Sjá meðfylgjandi myndskeið.
IV.
Í gær veitti Félag kvenna í atvinnulífinu (FKA) sínar árlegu viðurkenningar konum sem hafa skarað fram úr í atvinnulífinu. Það er sérstaklega ánægjulegt að segja frá því að þetta árið fékk Anna Stefánsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala, þakkarviðurkenningu félagsins fyrir eftirtektarvert ævistarf sem stjórnandi í atvinnulífinu. Fáar viðurkenningar eru eins verðskuldaðar og þessi. Anna hóf störf á Landspítala árið 1975 og varð fljótlega stjórnandi. Gegndi hún starfi hjúkrunarforstjóra og seinna framkvæmdastjóra hjúkrunar allar götur frá 1988 til 2012 og hefur gegnt lykilhlutverki í að móta hjúkrun og íslenska heilbrigðisþjónustu í meira en aldarfjórðung. Jafnframt sinnti Anna mörgum öðrum verkefnum; hún var formaður Rauða Kross Íslands, er formaður samtakanna Spítalinn okkar og er núverandi umdæmisstjóri Rótaríhreyfingarinnar á Íslandi. Anna er langt frá því sest í helgan stein. Þannig er hún nú starfandi forstjóri Reykjalundar og heldur áfram að vera hjúkrunarfræðingum, konum og já öllu starfsfólki frábær fyrirmynd.
Það er viðeigandi og fagnaðarefni að Anna skuli hafa hlotið þessa viðurkenningu. Heilbrigðisþjónusta er hluti af atvinnulífinu, hluti atvinnulífsins þar sem konur eru í meirihluta og öflugir stjórnendur, ekki síst úr stétt hjúkrunarfræðinga, hafa leitt og samhæft störf hundruða og þúsunda starfsfólks til áratuga. Því var lengi vel ekki veitt nægjanleg athygli meðal forsvarsmanna atvinnulífsins. Viðurkenning Önnu er til marks um breytta tíma.
Jafnframt er þetta sérstaklega viðeigandi þegar litið er til þess að Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur nefnt árið 2020 ár hjúkrunar. Viðurkenning Önnu slær réttan tón á því ári.
Góða helgi öll sömul!
Páll Matthíasson