Dagsetning: 2. maí 2019
Fundartími: 12:30-14:30
Staðsetning: Ásinn
Númer fundar: 7
Viðstaddir: Svava Sigurðardóttir, Eiríkur Örn Arnarson, Ingibjörg Lárusdóttir, Sverrir Harðarson, Þóra Steingrímsdóttir. Ólafur Samúelsson
Fjarverandi: Elísabet Guðmundsdóttir
Gestir (nafn/starfsheiti):
Fundarritari: Sveinbjörg Halldórsdóttir
Dagskrá
I. Fundargerð síðasta fundar samþykkt.
II. Skýrsla formanns um afgreiðslu mála milli funda.
Endanlega samþykkt
Erindi 20/019 „Komur og endurkomur 67 ára og eldri á bráðamóttöku Landspítala – lýðfræði, ástæður koma og áhrif eftirfylgdar“.
Ábyrgðarmaður: Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir, forstöðumaður og dósent
Aðrir umsækjendur:
- Sigrún Sunna Skúladóttir, hjúkrunarfræðingur og doktorsnemi, MS,
- Lovísa A. Jónsdóttir, MS, hjúkrunarfræðingur, gæða- og sýkingarvarnadeild , LSH
- Ingibjörg Sigurþórsdóttir, sérfræðingur í bráðahjúkrun, MS, flæðisvið LSH
- Helga Rósa Másdóttir, MS, aðstoðardeildarstjóri, bráðadeild Fv, flæðisvið LSH
- Elísabet Guðmundsdóttir, MS, Verkefnastjóri, hagdeild, Fjármálasvið LSH
- Hlíf Guðmundsdóttir, sérfræðingur í öldrunarhjúkrun, MS, flæðisvið LSH
Erindi 6/2019 „Alvarlegar afleiðingar barnabiks í legvatni fyrir nýburann“. Viðbót apríl 2019
Ábyrgðarmaður: Þórður Þórkelsson yfirlæknir.
Aðrir umsækjendur:
Hildur Harðardóttir fæðingarlæknir,
Jurate Ásmundsson meinafræðingur,
Edda Lárusdóttir læknanemi.
Erindi 40/2018 „Myndgreining á litlum (<3 cm) nýrnaæxlum“.
Ábyrgðarmaður: Halldór Benediktsson sérfræðilæknir á röntgendeild.
Aðrir umsækjendur:
Gunnar Andrésson deildarlæknir,
Eiríkur Orri Guðmundsson þvagfæraskurðlæknir,
Maríanna Garðarsdóttir röntgenlæknir,
Helgi Karl Engilbertsson þvagfæraskurðlæknir.
III. Fjallað um eftirfarandi umsóknir:
Erindi 18/2019 – endurbætt umsókn „Heilaáföll (e. Stroke) í börnum á Íslandi á árunum 1997-2018“.
Ábyrgðarmaður: Sigurður Einar Marelsson, Barnalæknir, sérfræðingur í taugasjúkdómum barna
Aðrir umsækjendur:
- Karólína Anna Snarska, kandídat
- Björn Logi Þórarinsson, sérfræðingur í heila og taugasjúkdómum fullorðinna
- Hróðmar Helgason, barnalæknir og sérfræðingur í hjartasjúkdómum barna
- Brynja Kristín Þórarinsdóttir, barnalæknir og sérfræðingur í taugasjúkdómum barna
- Laufey Ýr Sigurðardóttir, barnalæknir og sérfræðingur í taugasjúkdómum barna
- Ólafur Thorarensen, barnalæknir og sérfræðingur í taugasjúkdómum barna
- Pétur Lúðvígsson, barnalæknir og sérfræðingur í taugasjúkdómum barna
- Vilhjálmur Vilmarsson, röntgenlæknir,
Erindi var samþykkt með athugasemdum.
Erindi 21/2019 – Myndgreining á Vökudeild - Úttekt á verkferlum við röntgenmyndatöku af börnum í hitakassa
Ábyrgðarmaður: Alda Steingrímsdóttir, gæðastjóri/ geislafræðingur, Röntgendeild LSH
Aðrir umsækjendur:
- Elías Jóhannesson, meistaranemi í geislafræði við HÍ / geislafræðingur
- Guðlaug Björnsdóttir, geislafræðingur, lektor við HÍ, umsjónarkennari
- Jónína Guðjónsdóttir, geislafræðingur, Geislavarnir Ríkisins, leiðbeinandi
Erindi var samþykkt með athugasemdum.
Erindi 22/2019 – Skurðaðgerðir við loftbrjósti á Landspítala á árunum 1991-2018 – árangur og fylgikvillar. (viðbót við rannsókn 32/2013 – rannsóknartímabil útrunnið)
Ábyrgðarmaður: Tómas Guðbjartsson, sérfræðingur LSH
Aðrir umsækjendur:
- Tinna Harper Arnardóttir, sérnámslæknir
- Þórdís Magnadóttir , kandídat/deildarlæknir LSH
Nefndin óskar eftir endurbættri umsókn
Erindi 23/2019 – Áhrif þjálfunar hreyfikerfis öndunar eftir hjáveituaðgerð á hjarta á lungnarúmmál, öndunarhreyfingar og styrk öndunarvöðva. Forkönnun
Ábyrgðarmaður: Bjarni Torfason, Yfirlæknir og dósent, Hjarta- og lungnaskurðeild LSH
Aðrir umsækjendur:
- Þórhildur Hrafnsdóttir, nemi í sjúkraþjálfun H.Í.
- Dr. María Ragnarsdóttir, fyrrum rannsóknasjúkraþjálfari á LSH,
- NN-1 sjúkraþjálfari, LSH, ákveðið haust 2019 og tilkynnt þá
- NN-2 sjúkraþjálfari, LSH, ákveðið haust 2019 og tilkynnt
Erindi var samþykkt með athugasemdum.
IV. Önnur mál.
a) Vegna undirbúnings langs fundar 23. maí næstkomandi. Hvað á að taka fyrir á fundinum?
Funda skal frá 12:30-15:00. Fara á yfir ásýnd nefndarinnar á netinu. Kanna hversu auðvelt er að finna umsóknareyðublöð og athuga hvort upplýsingar séu réttar. Einnig þarf að eyða út úreldum gögnum og upplýsingum.
b) Kvörtun vegna rannsóknar 47/2018
Láta þarf ábyrgðarmann rannsóknar vita af eðli kvörtunar.
Eftir að upplýsinga hefur verið aflað þarf að rita bréf til kvartanda og svara athugasemdum.
Aðalfulltrúar vinsamlega láti mig vita af forföllum og boði sjálfir sérstaklega sinn varafulltrúa vegna þeirra. Varafulltrúar eru jafnframt velkomnir þótt aðalfulltrúi mæti.
Virðingarfyllst
Ólafur Samúelsson formaður.