Móttökustandur var formlega tekinn í notkun þann 27. febrúar 2019 fyrir skjólstæðinga almennu göngudeildarinnar 10E og Hjartagáttar 10D á Landspítala Hringbraut.
Þeir skrá sig nú sjálfir inn með því að slá inn kennitölu í stað þess að gefa sig fram hjá ritara. Við skráninguna er svarað spurningum um smitgát og ofnæmi og nú er nýtt að hægt er að yfirfara hvort persónuupplýsingar eru réttar.
Skjólstæðingur merkist sjálfkrafa mættur í sjúkraskrárkerfið Sögu og er vísað á rétta biðstofu. Sá sem veitir þjónustuna fær boð um að skjólstæðingur sé mættur.
Þessum móttökustandi er ætlað að skila mikilli hagræðingu og auknum þægindum bæði fyrir starfsfólk og skjólstæðinga Landspítala