Dagsetning: 28. febrúar 2019
Fundartími: 12:30-14:10
Staðsetning: Ásinn
Númer fundar: 4
Viðstaddir: Svava Sigurðardóttir, Ólafur Samúelsson, Eiríkur Örn Arnarson, Ingibjörg Lárusdóttir, Sverrir Harðarson, Elísabet Guðmundsdóttir.
Fjarverandi: Þóra Steingrímsdóttir.
Gestir (nafn/starfsheiti): Sveinbjörg Halldórsdóttir.
Fundarritari: Tinna Eysteinsdóttir.
Dagskrá
I. Fundargerð síðasta fundar samþykkt.
II. Skýrsla formanns um afgreiðslu mála milli funda.
Endanlega samþykkt
Erindi 62/2018 „Er marktækur munur á 1,5 Tesla og 3 Tesla tækjum á lendhrygg í segulómun?“
Ábyrgðarmaður: Kristján Örn Jóhannesson geislafræðingur.
Aðrir umsækjendur: Katinka Ýr Björnsdóttir geislafræðinemi.
Erindi 50/2018 „Samantekt á krabbameinslyfjameðferðum með einstofna mótefnum af flokki ónæmisörvandi lyfja á Íslandi Ábendingar og þol lyfjameðferða“ - Viðbót.
Ábyrgðarmaður: Þórunn Kristín Guðmundsdóttir klínískur lyfjafræðingur og lektor.
Aðrir umsækjendur: Helma Björk Óskarsdóttir ms nemi í lyfjafræði, Gunnar Bjarni Ragnarsson sérfræðingur í lyf- og krabbameinslækningum, Signý Vala Sveinsdóttir sérfræðingur í blóðlækningum.
III. Fjallað um eftirfarandi umsóknir:
Erindi 7/2019 „Svefngæði og svefnraskanir eftir árstíðum hjá ungu fólki með byrjandi geðraskanir samanborið við háskólanemendur“.
Ábyrgðarmaður: Baldur Heiðar Sigurðsson sálfræðingur.
Aðrir umsækjendur: Erla Björnsdóttir sálfræðingur og nýdoktor, Ásrún Á. Jónsdóttir Msc nemi í klínískri sálfræði.
Samþykkt með athugasemdum
Erindi 8/2019 „Próffræðilegir eiginleikar PAM (Psychosis Attachment Mearsure) og AATS (Attachment Avoidance in Therapy Scale) á Íslandi og áhrif geðtengslastíl á alvarleika geðrofseinkenna og tímalengdar ómeðhöndlaðs geðrofs“.
Ábyrgðarmaður: Baldur Heiðar Sigurðsson sálfræðingur.
Aðrir umsækjendur: Baldur Már Richter MSc nemi í klínískri sálfræði.
Athugasemdir gerðir, viljum fá endurbætta umsókn fyrir fund
Erindi 9/2019 „Próffræðilegir eiginleikar Stages of Change Readiness and Treatment Eagerness Scale (SOCRATES) og University of Rhode Island Change Assessment (URICA)“.
Ábyrgðarmaður: Baldur Heiðar Sigurðsson sálfræðingur.
Aðrir umsækjendur: Birta Brynjarsdóttir sálfræðingur, Elfar Þór Bragason MSc í klínískri sálfræði.
Athugasemdir gerðir, viljum fá endurbætta umsókn fyrir fund
Erindi 10/2019 „Hugræn innsæisþjálfun með hugrænni atferlismeðferð (HI+HAM): slembiröðuð meðferðarprófun fyrir ungt fólk með byrjandi geðrofssjúkdóm“.
Ábyrgðarmaður: Brynja B. Magnúsdóttir sálfræðingur og lektor.
Aðrir umsækjendur: Heiðrún Hafþórsdóttir MSc í klínískri sálfræði, Ólína Viðarsdóttir sálfræðingur, Birta Brynjarsdóttir sálfræðingum, Baldur Heiðar Sigurðsson sálfræðingur.
Samþykkt með athugasemdum
Erindi 11/2019 „Meðferð með líftæknilyfjum við fylgiliðagigt; meðferðarárangur og meðferðaröryggi“.
Ábyrgðarmaður: Björn Guðbjörnsson sérgreinalæknir og prófessor.
Aðrir umsækjendur: Bjarni Þorsteinsson sérnámslæknir, Ólafur Pálsson sérnámslæknir í gigt og doktorsnemi við HÍ, Árni Jón Geirsson sérfræðilæknir og klínískur dósent.
Samþykkt með athugasemdum
Erindi 12/2019 „Samanburður á meðferð kalsíumlækkunar eftir heildarskjaldnám fyrir og eftir upptöku breyttra verklagsreglna eftir aðgerð“.
Ábyrgðarmaður: Geir Tryggvason lælknir.
Aðrir umsækjendur: Einar Hjörleifsson, Deildarlæknir.
Samþykkt með athugasemdum
Erindi 13/2019 „Reynsla maka einstaklinga með hreyfitaugungahrörnunarsjúkdóm (MND) frá greiningu til andláts: Eigindleg viðtöl“.
Ábyrgðarmaður: Marianne Elisabeth Klinke hjúkrunarfræðingur og lektor.
Aðrir umsækjendur: Sólveig Haraldsdóttir hjúkrunarfræðingur og ms nemi, Helga Jónsdóttir prófessor og forstöðumaður fræðasviðs.
Samþykkt með athugasemdum
Erindi 15/2019 „Könnun á notagildi "Longitudinal Plots" við mat á næringarmeðferð sjúklinga með arfgenga efnaskiptasjúkdóma“.
Ábyrgðarmaður: Leifur Franzson deildarlyfjafræðingur.
Aðrir umsækjendur: Sunna Traustadóttir diplómanemi í lífeindafræði.
Athugasemdar gerðir, viljum fá endurbætta umsókn fyrir fund
IV. Önnur mál
Sveinbjörg Halldórsdóttir mætti á fundinn, en hún mun leysa Tinnu Eysteinsdóttur af meðan hún verður í fæðingarorlofi.
Umsókn 14/2019 var ekki tekin fyrir, þar sem rannsakendur óskuðu eftir því að fá að senda inn breytta umsókn.