Fundur siðanefndar heilbrigðisrannsókna á Landspítala
Dagsetning: 14. febrúar 2019
Fundartími: 12:35-13:45
Staðsetning: Gryfjan
Númer fundar: 3
Viðstaddir: Svava Sigurðardóttir, Ólafur Samúelsson, Eiríkur Örn Arnarson, Ingibjörg Lárusdóttir, Sverrir Harðarson, Elísabet Guðmundsdóttir.
Fjarverandi: Þóra Steingrímsdóttir.
Gestir: Sveinbjörg Halldórsdóttir. (nafn/starfsheiti):
Fundarritari: Tinna Eysteinsdóttir.
Dagskrá:
I. Fundargerð síðasta fundar samþykkt.
II. Skýrsla formanns um afgreiðslu mála milli funda.
Endanlega samþykkt
Erindi 3/2019 „Gæði hefðbundinna röntgenrannsóknar við greiningu á áverkum í efri hálshryggnum“
Ábyrgðarmaður: Halldór Jónsson jr yfirlæknir og prófessor.
Aðrir umsækjendur: Laufey Kristjánsdóttir geislafræðinemi, Áskell Löve sérfræðilæknir.
III. Fjallað um eftirfarandi umsóknir:
Erindi 5/2019 „Segulómun af brjóstum á LSH frá 2008-2018“.
Ábyrgðarmaður: Ásbjörn Jónsson yfirlæknir og dósent.
Aðrir umsækjendur: Svanheiður Lóa Rafnsdóttir skurðlæknir, Ester Kristínardóttir deildarlæknir.
Athugasemdir gerðir, viljum fá endurbætta umsókn fyrir fund
Erindi 6/2019 „Alvarlegar afleiðingar barnabiks í legvatni fyrir nýburann“.
Ábyrgðarmaður: Þórður Þórkelsson yfirlæknir.
Aðrir umsækjendur: Hildur Harðardóttir fæðingarlæknir, Jurate Ásmundsson meinafræðingur, Edda Lárusdóttir læknanemi.
Samþykkt með athugasemdum
IV. Önnur mál
Sveinbjörg Halldórsdóttir mætti á fundinn, en hún mun leysa Tinnu Eysteinsdóttur af meðan hún verður í fæðingarorlofi.