Fundur siðanefndar heilbrigðisrannsókna á Landspítala
Dagsetning: 31. janúar 2019
Fundartími: 12:45-13:45
Staðsetning: Ásinn
Númer fundar: 2
Viðstaddir: Svava Sigurðardóttir, Ólafur Samúelsson, Þóra Steingrímsdóttir, , Eiríkur Örn Arnarson, Helga Þórðardóttir og Ingibjörg Lárusdóttir.
Fjarverandi: Sverrir Harðarson, Elísabet Guðmundsdóttir
Gestir (nafn/starfsheiti):
Fundarritari: Tinna Eysteinsdóttir.
Dagskrá:
I. Fundargerð síðasta fundar samþykkt.
II. Skýrsla formanns um afgreiðslu mála milli funda.
Endanlega samþykkt
Erindi 39/2018 „Árangur og fylgikvillar af gangráðs, bjargráðs og tvísleglagangráðsmeðferð á Íslandi 2014-2018“.
Ábyrgðarmaður: Sigfús Örvar Gizurarson yfirlæknir.
Aðrir umsækjendur: Birgir Magnússon lífeindafræðinemi, Kristján Guðmundsson hjartalæknir.
Erindi 44/2018 „Sérhæfð meðferð og snemmtækt inngrip við geðhvörfum á Íslandi“.
Ábyrgðarmaður: Halla Ósk Ólafsdóttir sálfræðingur og verkefnastjóri.
Aðrir umsækjendur: Engilbert Sigurðsson yfirlæknir og prófessor, Brynja Björk Magnúsdóttir sálfræðingur og lektor, Berglind Guðmundsdóttir yfirsálfræðingur, Nanna Briem yfirlæknir.
Erindi 51/2018 „Afturskyggn rannsókn á rofi á maga- og skeifugörn á Landspítala 2008-2017“.
Ábyrgðarmaður: Kristín Huld Haraldsdóttir skurðlæknir.
Aðrir umsækjendur: Sigurður Blöndal skurðlæknir, Andrea Bára Stefánsdóttir sérnámslæknir.
Erindi 53/2018 „Gagnsemi mælingar á s-tryptasa hjá sjúklingum á bráðamóttöku með bráð ofnæmiseinkenni“.
Ábyrgðarmaður: Hjalti Már Björnsson bráðalæknir.
Aðrir umsækjendur: María I Gunnbjörnsdóttir ofnæmislæknir, Karólína Hansen læknanemi.
Erindi 54/2018 „Meðfæddir efnaskiptasjúkdómar hjá börnum á Íslandi 2003-2018“.
Ábyrgðarmaður: Sigurður Einar Marelsson sérfræðilæknir.
Aðrir umsækjendur: Brynja Kristín Þórarinsdóttir sérfræðingur í heila og taugasjúkdómum barna, Hans Tómas Björnsson sérfræðingur í barna- erfðalækningum, Leifur Franzson lyfjafræðingur, Guðrún Svanlaug læknanemi.
Erindi 55/2018 „Úttekt á lyfjaupplýsingum við útskrift sjúklinga af Bráðalyflækningadeild Landspítala“.
Ábyrgðarmaður: Pétur S. Gunnarsson lyfjafræðingur.
Aðrir umsækjendur: Aðalsteinn Guðmundsson yfirlæknir, Ólafur H. Samúelsson öldrunarlæknir, Helga Kristinsdóttir lyfjafræðingur.
Erindi 56/2018 „Árangur skurðaðgerða við nýrnakrabbameini á Landspítala á árunum 2010-2017“.
Ábyrgðarmaður: Eiríkur Orri Guðmundsson þvagfæraskurðlæknir.
Aðrir umsækjendur: Jóhann Þór Jóhannsson læknanemi, Helgi Karl Engilbertsson sérfræðilæknir, Jón Örn Friðriksson sérfræðilæknir, Sigurður Guðjónsson sérfræðilæknir.
Erindi 57/2018 „Úttekt á ávísuðum lyfjum við útskrift sjúklinga frá hjartadeild LSH sem greinst hafa með bráð kransæðaheilkenni (Acute Coronary Syndrome – ACS) með eða án ST-breytinga (STEMI, NSTEMI) borið saman við ráðleggingar í klínískum leiðbeiningum evrópsku hjartalæknasamtakanna (ESC)“.
Ábyrgðarmaður: Elín I Jacobsen lyfjafræðingur.
Aðrir umsækjendur: Karl K. Andersen yfirlæknir, Ingibjörg Gunnþórsdóttir lyfjafræðingur, Inga Valborg Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Erindi 59/2018 „Staða fyrirbyggjandi sýklalyfjagjafa hjá sjúklingum sem fara í valaðgerð á ristli eða endaþarmi á Landspítala. Eru fyrirbyggjandi sýklalyfjagjafir á Landspítala í samræmi við alþjóðlegar leiðbeiningar?“.
Ábyrgðarmaður: Pétur S. Gunnarsson lyfjafræðingur.
Aðrir umsækjendur: Ingibjörg Gunnþórsdóttir lyfjafræðingur, Agnar Bjarnason sérfræðilæknir, Páll H. Möller yfirlæknir, Selma Jónsdóttir MS nemi í lyfjafræði.
Erindi 60/2018 „Meðferð sykursýki hjá einstaklingum sem nýverið hafa verið greindir með bráðan kransæðasjúkdóm (NSTEMI og STEMI)– Staða lyfjanotkunar hjá þessum sjúklingum miðað við klínískar leiðbeiningar evrópsku hjartalæknasamtakanna (ESC)“.
Ábyrgðarmaður: Pétur S. Gunnarsson lyfjafræðingur.
Aðrir umsækjendur: Ingibjörg Gunnþórsdóttir lyfjafræðingur, Karl K Anderssen yfirlæknir, Valgerður Sigtryggsdóttir MS nemi í lyfjafræði.
Erindi 61/2018 „Nokun á O-boga í samhengi við aðra myndgreiningu á Landspítala Háskólasjúkrahúsi“.
Ábyrgðarmaður: Jónína Guðjónsdóttir lektor við HÍ.
Aðrir umsækjendur: Katrín Lára Lárusdóttir geislafræðinemi, Agnes Benediktsdóttir geislafræðingur á LSH.
Erindi 2/2019 „Endurkomur og endurinnlagnir skurðsjúklinga á LSH“.
Ábyrgðarmaður: Brynja Ingadóttir lektor og sérfræðingur í hjúkrun.
Aðrir umsækjendur: Katrín Blöndal sérfræðingur í hjúkrun, Berglind Óðinsdóttir BS hjúkrunarnemi, Katrín Sigvaldadóttir BS hjúkrunarnemi, Hanna Björk Kristjánsdóttir BS hjúkrunarnemi, Eva Ásdís Ögmundsdóttir BS hjúkrunarnemi.
Erindi 47/2018 „Langtímaáhrif brunaáverka á heilsu fullorðinna einstaklinga“ - viðbót.
Ábyrgðarmaður: Brynja Ingadóttir sérfræðingur í hjúkrun og lektor.
Aðrir umsækjendur: Lovísa Baldursdóttir sérfræðingur í hjúkrun, Vigdís Friðriksdóttir hjúkrunarfræðingur og ms.nemi, Gunnar Auðólfsson sérfræðingur í lýtalækningum, ónefndur meistaranemi (tilkynnt síðar).
III. Fjallað um eftirfarandi umsóknir:
Erindi 4/2019 „Mæling QT-bils hjá ungu fólki með geðrofssjúkdóma“.
Ábyrgðarmaður: Halldóra Jónsdóttir yfirlæknir.
Aðrir umsækjendur: Bryndís Sjöfn Blandon 3.árs læknanemi, Nanna Briem yfirlæknir, Oddur Ingimarsson geðlæknir.
Samþykkt með athugasemdum
IV. Önnur mál
Ingibjörg Lárusdóttir mætti á fundinn, en hún mun leysa Helgu Þórðardóttur af meðan hún verður í fæðingarorlofi.
Ársskýrsla 2018 samþykkt.