Fundur siðanefndar heilbrigðisrannsókna á Landspítala
Dagsetning: 13. desember 2018
Fundartími: 12:40-13:50
Staðsetning: Ásinn
Númer fundar: 17
Viðstaddir: Sverrir Harðarson, Elísabet Guðmundsdóttir, Svava Sigurðardóttir, Ólafur Samúelsson Þóra Steingrímsdóttir, Oddur Gunnarsson, Eiríkur Örn Arnarson.
Fjarverandi: (Helga Þórðardóttir – Oddur mættur í hennar stað)
Gestir (nafn/starfsheiti): Fundarritari: Tinna Eysteinsdóttir.
Dagskrá:
I. Fundargerð síðasta fundar samþykkt.
II. Skýrsla formanns um afgreiðslu mála milli funda.
Endanlega samþykkt
Erindi 45/2018 „Áhrif af markvissri hreyfingu, til viðbótar við vitræna endurhæfingu með félagsskilningsþjálfun, á vitræna getu, líðan og færni í daglegu lífi hjá einstaklingum með geðrofssjúkdóma“.
Ábyrgðarmaður: Brynja Björk Magnúsdóttir sálfræðingur og lektor.
Aðrir umsækjendur: Thelma Sif Kristjánsdóttir iðjuþjálfi, Ólína Viðarsdóttir sálfræðingur, Arna Hauksdóttir prófessor, Hildur Guðný Ásgeirsdóttir dr.nemi og stundakennari, Nanna Briem yfirlæknir.
Erindi 46/2018 „Reynsla aðstandenda af þjónustu Laugarássins meðferðargeðdeildar“.
Ábyrgðarmaður: Sigríður Halldórsdóttir prófessor við HA.
Aðrir umsækjendur: Halldóra Friðgerður Víðisdóttir ms nemi í stjórnun í heilbrigðisþjónustu, hjúkrunarfræðingur og aðstoðardeildarstjóri á Laugarási.
Erindi 47/2018 „Langtímaáhrif brunaáverka á heilsu fullorðinna einstaklinga“.
Ábyrgðarmaður: Brynja Ingadóttir sérfræðingur í hjúkrun og lektor.
Aðrir umsækjendur: Lovísa Baldursdóttir sérfræðingur í hjúkrun, Vigdís Friðriksdóttir hjúkrunarfræðingur og ms.nemi, Gunnar Auðólfsson sérfræðingur í lýtalækningum, ónefndur meistaranemi (tilkynnt síðar)..
Erindi 48/2018 „Sameindalífmerki úr móðurblóði og fylgju til greiningar á meðgöngueitrun“.
Ábyrgðarmaður: Guðrún Valdimarsdóttir dósent.
Aðrir umsækjendur: Þóra Steingrímsdóttir prófessor og yfirlæknir, Marta Sorokina Alexdóttir ms nemi, Gyða Ingólfsdóttir deildarlæknir og sérnámslæknir..
Erindi 40/2016 „Innlagnir barna á aldrinum 0-18 ára á gjörgæsludeildir LSH á árunum 2006-2015 og líðan foreldra sem átt hafa börn á gjörgæsludeildum LSH á árunum 2016-2017“ – viðbót.
Ábyrgðarmaður: Guðrún Kristjánsdóttir prófessor í hjúkrun.
Aðrir umsækjendur: Sigríður Árna Gísladóttir hjúkrunarfræðingur, Kristinn Sigvaldason yfirlæknir, Sigurbergur Kárason yfirlæknir, Guðrún Jónsdóttir sérfr í hjúkrun.
Erindi 29/2018 „Afdrif einstaklinga 10 árum eftir fyrsta heilaslag“ - viðbót.
Ábyrgðarmaður: Guðbjörg Þóra Andrésdóttir, sérfræðingur í sjúkraþjálfun.
Aðrir umsækjendur: Anestis Divanoglou (AD), PT, PhD, Assistant Professor, University of Iceland, Agust Hilmarsson (AH), MD, Landspitali University Hospital, Aðalbjörg Birgisdóttir (AB), Master in Physiotherapy student, University of Iceland, Aldís Edda Ingvarsdóttir (AEI), Master in Physiotherapy student, University of Iceland.
III. Fjallað um eftirfarandi umsóknir:
Erindi 51/2018 „Afturskyggn rannsókn á rofi á maga- og skeifugörn á Landspítala 2008-2017“.
Ábyrgðarmaður: Kristín Huld Haraldsdóttir skurðlæknir.
Aðrir umsækjendur: Sigurður Blöndal skurðlæknir, Andrea Bára Stefánsdóttir sérnámslæknir.
Samþykkt með athugasemdum
Erindi 52/2018 „Verkir, vökustig og óráð sjúklinga á gjörgæsludeildum: Afturvirk samanburðarrannsókn fyrir og eftir innleiðingu verklags (Pain, agitation and delirium of intensive care patients: Before and after study).“.
Ábyrgðarmaður: Hrönn Birgisdóttir gjörgæsluhjúkrunarfræðingur.
Aðrir umsækjendur: Rannveig J. Jónasdóttir sérfræðingur í hjúkrun, Arndís Embla Jónsdóttir hjúkrunarnemi, Kristrún Vala Benediktsdóttir hjúkrunarnemi.
Samþykkt með athugasemdum
Erindi 53/2018 „Gagnsemi mælingar á s-tryptasa hjá sjúklingum á bráðamóttöku með bráð ofnæmiseinkenni“.
Ábyrgðarmaður: Hjalti Már Björnsson bráðalæknir.
Aðrir umsækjendur: María I Gunnbjörnsdóttir ofnæmislæknir, Karólína Hansen læknanemi.
Samþykkt með athugasemdum
Erindi 54/2018 „Meðfæddir efnaskiptasjúkdómar hjá börnum á Íslandi 2003-2018“.
Ábyrgðarmaður: Sigurður Einar Marelsson sérfræðilæknir.
Aðrir umsækjendur: Brynja Kristín Þórarinsdóttir sérfræðingur í heila og taugasjúkdómum barna, Hans Tómas Björnsson sérfræðingur í barna- erfðalækningum, Leifur Franzson lyfjafræðingur, Guðrún Svanlaug læknanemi.
Samþykkt með athugasemdum
Erindi 55/2018 „Úttekt á lyfjaupplýsingum við útskrift sjúklinga af Bráðalyflækningadeild Landspítala“.
Ábyrgðarmaður: Pétur S. Gunnarsson lyfjafræðingur.
Aðrir umsækjendur: Aðalsteinn Guðmundsson yfirlæknir, Ólafur H. Samúelsson öldrunarlæknir, Helga Kristinsdóttir lyfjafræðingur.
Samþykkt með athugasemdum
Erindi 56/2018 „Árangur skurðaðgerða við nýrnakrabbameini á Landspítala á árunum 2010-2017“.
Ábyrgðarmaður: Eiríkur Orri Guðmundsson þvagfæraskurðlæknir.
Aðrir umsækjendur: Jóhann Þór Jóhannsson læknanemi, Helgi Karl Engilbertsson sérfræðilæknir, Jón Örn Friðriksson sérfræðilæknir, Sigurður Guðjónsson sérfræðilæknir.
Athugasemdir gerðar, endurbætt umsókn verður tekin fyrir á næsta fundi.
Erindi 57/2018 „Úttekt á ávísuðum lyfjum við útskrift sjúklinga frá hjartadeild LSH sem greinst hafa með bráð kransæðaheilkenni (Acute Coronary Syndrome – ACS) með eða án ST-breytinga (STEMI, NSTEMI) borið saman við ráðleggingar í klínískum leiðbeiningum evrópsku hjartalæknasamtakanna (ESC)“.
Ábyrgðarmaður: Elín I Jacobsen lyfjafræðingur.
Aðrir umsækjendur: Karl K. Andersen yfirlæknir, Ingibjörg Gunnþórsdóttir lyfjafræðingur, Inga Valborg Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Samþykkt með athugasemdum
Erindi 58/2018 „Öndunarfæraeinkenni vegna flugeldamengunar – lýsandi rannsókn“.
Ábyrgðarmaður: Hjalti Már Björnsson bráðalæknir.
Aðrir umsækjendur: Sigurbjörg Bragadóttir sérnámslæknir, Nils Danielsson deildarlæknir.
Samþykkt með athugasemdum
Erindi 59/2018 „Staða fyrirbyggjandi sýklalyfjagjafa hjá sjúklingum sem fara í valaðgerð á ristli eða endaþarmi á Landspítala. Eru fyrirbyggjandi sýklalyfjagjafir á Landspítala í samræmi við alþjóðlegar leiðbeiningar?“.
Ábyrgðarmaður: Pétur S. Gunnarsson lyfjafræðingur.
Aðrir umsækjendur: Ingibjörg Gunnþórsdóttir lyfjafræðingur, Agnar Bjarnason sérfræðilæknir, Páll H. Möller yfirlæknir, Selma Jónsdóttir MS nemi í lyfjafræði.
Samþykkt með athugasemdum
Erindi 60/2018 „Meðferð sykursýki hjá einstaklingum sem nýverið hafa verið greindir með bráðan kransæðasjúkdóm (NSTEMI og STEMI)– Staða lyfjanotkunar hjá þessum sjúklingum miðað við klínískar leiðbeiningar evrópsku hjartalæknasamtakanna (ESC)“.
Ábyrgðarmaður: Pétur S. Gunnarsson lyfjafræðingur.
Aðrir umsækjendur: Ingibjörg Gunnþórsdóttir lyfjafræðingur, Karl K Anderssen yfirlæknir, Valgerður Sigtryggsdóttir MS nemi í lyfjafræði.
Samþykkt með athugasemdum