Jáeindaskanni (PET) var formlega tekinn í notkun á Landspítala 12. desember 2018 en slíkt tæki hefur ekki verið hér á landi þar til nú. Byrjað var að nota það síðsumars.
Íslensk erfðagreining gaf skannann og húsið sem þurfti að byggja yfir hann og framleiðslustarfsemi tengda honum. Árlega fóru um 200 sjúklingar í jáeindaskanna til Danmerkur og áætlað hefur verið að um 2.000 manns fari í skannann hér á landi ár hvert.
Jáeindaskanni er bylting í greiningu og meðferð sjúkdóma, hann gefur til dæmis mjög nákvæmar upplýsingar um staðsetningu og dreifingu krabbameina og gerir þannig geislameðferð markvissari og fækkar óþarfa skurðaðgerðum. Með því minnka aukaverkanir og batahorfur aukast. Einnig er hægt að greina hvernig sjúkdómar bregðast við meðferð og grípa fyrr inn í, ef þarf. Jáeindaskanninn á líka eftir að nýtast vel við rannsóknar- og vísindastarf á Íslandi en slíkt tæki er talið sjálfsagt við rannsóknir marga sjúkdóma.
Myndskeið frá athöfninni 12.desember: Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala, og Pétur H. Hannesson yfirlæknir röntgendeildar Landspítala sögðu nokkur orð. Meðal viðstaddra voru einnig Alma D. Möller landlæknir, og María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands.