Kæra samstarfsfólk!
Það er á ábyrgð okkar allra að tryggja öryggi sjúklinga okkar með þeim aðferðum sem okkur eru tiltækar á hverjum tíma. Þið þekkið flest hermisetrið okkar, Örkina, sem er lykilþáttur í öryggisvegferðinni. Hermisetrið opnaði í apríl 2016 og þar gefst heilbrigðisstarfsfólki kostur á að æfa sig við öruggar aðstæður og er tilgangurinn auðvitað að auka færni starfsfólks og tryggja samvinnu. Gríðarlegur metnaður hefur verið lagður í uppbygginu hermisetursins og það var því mikið gleðiefni þegar Örkin hlaut nýverið vottun frá hinu breska ASPiH (Association for Stimulated Practice in Health Care). Í vottuninni felst viðurkenning á gæðum hermisetursins sem heilbrigðisstarfsfólk, menntastofnanir, yfirvöld og sjúklingar geta horft til.
Í stuttu máli er hér komin staðfesting á því að kennsla og þróunin í klínískri kennslu við Landspítala stenst samanburð við alþjóðleg kennslusetur og hefur sérstaka þýðingu fyrir okkur í ljósi öflugs samstarfs við Royal College of Physicians í London um framhaldsnám lækna.
Örkin er annað tveggja hermisetra sem hlýtur þessa viðurkenningu í ár og erum við því afskaplega stolt af frábærum árangri. Ég leyfi mér þó að segja að viðurkenningin kemur mér ekki á óvart, ég hef heimsótt fjölmörg hermisetur erlendis síðustu misseri og okkar kemur klárlega vel út úr þeim samanburði og er eitt af þeim glæsilegustu og metnaður þeirra sem sinna setrinu hjá okkur tryggir framúrskarandi útkomu.
Í vikunni fóru víða fréttir af sjúklingi okkar sem hafði þurft að gista á baðherbergi bráðaöldrunardeildar. Að vonum var fólki brugðið, enda er þetta ekki aðstaða sem nokkur ætti að þurfa að búa við. Því miður kemur þó fyrir, við sérstakar aðstæður, að grípa verður til óyndisúrræða af þessu tagi, þótt auðvitað sé sjúklingi komið í betra rými um leið og það er unnt. Þetta er birtingarmynd af því ástandi sem við á Landspítala höfum verið óþreytandi að benda á: skortur á úrræðum fyrir sjúklinga sem þegar hafa lokið meðferð og þurfa úrræði utan spítalans veldur því að deildir yfirfyllast, þegar að nýir sjúklingar þurfa þjónustu deildarinnar en aðrir komast ekki af henni.
Samhliða þessu hefur spítalinn þurft að loka rúmum vegna skorts á hjúkrunarfræðingum, en nú eru ríflega 40 rúm lokuð vegna þessa. Landspítali er sérgreinasjúkrahús og til okkar leitar fólk með vandamál sem krefjast sérhæfðrar þekkingar sem ekki er hægt að fá annars staðar, ekki fólk að leita húsaskjóls. Þess vegna er mikilvægt að sú mikla fjárfesting sem í mannauð og búnað hefur verið lögð nýtist með sem bestum hætti. Afar áríðandi er að sú deild sem sjúklingur leggst inn á sé mönnuð starfsfólki sem sérhæfir sig í vandamáli viðkomandi. Þannig getum við best tryggt að viðunandi meðferð fáist og lágmarkað líkur á alvarlegum atvikum. Það er vel þekkt að þegar alvarleg atvik verða, þá er innlögn utan þeirrar sérhæfingar sem sjúklingurinn þarfnast einn af lykilþáttum í því sem aflaga fer.
Nú er rétt vika þar til bráðaþjónusta Hjartagáttar Landspítala verður flutt á bráðamóttöku spítalans í Fossvogi. Mikill undirbúningur hefur verið unninn af fjölda starfsmanna, sem leggur allt kapp á að tryggja öryggi og góða þjónustu við hjartasjúklinga eftir flutningana. Rétt er að árétta að það er einungis bráðaþjónustan sem flytur, en áfram verður rekin öflug dag- og göngudeildarþjónustu fyrir hjartasjúklinga við Hringbraut, sem stendur til að styrkja enn frekar.
Ítarlega er fjallað um þetta í meðfylgjandi myndskeiði, sem ég hvet alla til að skoða og kynna sér málið vandlega.
Hafið það gott um helgina.
Páll Matthíasson