Kæra samstarfsfólk!
Það er hásumar og vonandi náið þið sem flest að njóta einhverra sumarfrídaga. Auðvitað gæti veðrið verið betra – en rigningin er þó góð fyrir gróðurinn – að minnsta kosti meðan vatnsflaumurinn drekkir ekki sumarblómunum.
Móttaka bráðveikra hjartasjúklinga á bráðamóttöku í Fossvogi hefur gengið vonum framar og samreksturinn við aðra þjónustu þar hefur gengið að mestu vel. Undirbúningurinn var vandaður og þar, eins og annars staðar á spítalanum, á starfsfólk heiður skilið fyrir ósérhlífið starf. Margt hefur gert reksturinn auðveldari en á horfðist, meðal annars hefur fjöldi sjúklinga sem til okkar leitar verið í lægra meðaltali og ýmislegt annað innanhúss hefur hjálpað verulega til. Átak í því að fólk sem útskrifast víki úr rúmum strax að morgni hefur greitt fyrir flæði og gert þeim deildum sem því verklagi fylgja kleift að taka fyrr um daginn við sjúklingum. Það getur munað öllu þegar að fá laus rúm eru til staðar og vil ég hvetja allar deildir til að skoða þetta vinnulag og undirbúa sjúklinga frá innlögn undir það að þeir losi rúm sín strax að morgni útskriftardags, ef heilsa leyfir.
Þótt vel gangi víða, þá er spítalinn því miður ekki laus við erfiðleika. Kjaradeila ljósmæðra færðist á nýtt og alvarlegra stig aðfararnótt miðvikudagsins 18. júlí þegar að yfirvinnuverkfall bættist við þær uppsagnir sem tóku gildi 1. júlí síðastliðinn. Fyrir miðvikudaginn náði mönnun á meðgöngu- og sængurlegudeild ekki upp í verkfallsneyðarlista. Nú bætast við auknir erfiðleikar við að kalla inn ljósmæður til yfirvinnu og álagið kemur einnig fram í öðrum einingum fæðingarþjónustunnar. Samhliða hefur geta annarra stofnana til að hlaupa undir bagga með okkur minnkað, enda hefur verkfallið áhrif þar sömuleiðis.
Vegna þessa þá neyðumst við til að flytja þjónustu meðgöngu- og sængurlegudeildar á kvenlækningadeild 21A, frá og með deginum í dag. Þetta hefur í för með sér aukið álag annars staðar á spítalanum, þar sem 21A getur ekki lengur gegnt mikilvægu hlutverki sem yfirflæðisdeild fyrir sjúklinga af lyflækninga- og skurðlækningasviðum og búast má við áhrifum á þann sjúklingahóp sem 21A sinnir öllu jafna, en deildin er í senn dag-, legu- og bráðamóttökudeild fyrir konur með bráða kvensjúkdóma og konur sem þurfa skurðaðgerð vegna góðkynja eða illkynja sjúkdóma í grindarholi og brjóstum.
Að auki verður fyrstu ómskoðun þungaðra kvenna hætt frá mánudeginum 23. júlí. Þetta er valkvæð rannsókn, sem flestar þungaðar konur hafa samt nýtt sér. Vikulega eru að meðaltali gerðar um 65 slíkar ómskoðanir við 11-14 vikna meðgöngu með og án samþætts líkindamats. Eftir sem áður verður 20 vikna ómskoðun til staðar. Þótt þessi fyrsta ómskoðun sé ekki bráðnauðsynleg öryggis vegna, þá er þessi rannsókn hlekkur í víðtæku og öflugu mæðraeftirliti sem skilað hefur árangri í fæðingum sem er framúrskarandi á heimsvísu.
Breytingar á þjónustu við þungaðar og fæðandi konur frá 1. júlí eru víðtækar. Þjónustan er minni, konur eru sendar heim strax og öruggt er eftir fæðingu og í sumum tilvikum hafa konur verið fluttar landshluta á milli til fæðinga eða annarra meðferða sem Landspítali veitir. Nú hættir fyrsta ómskoðun og mjög þrengir að þjónustu meðgöngu- og sængurlegudeildar. Allt er þetta gert til að þétta starfsemina og reyna eins og kostur er að tryggja öryggi í fæðingarþjónustu. Staðreyndin er samt sú að öryggi er ógnað og ljóst að ekki verður lengi haldið áfram með of fáum ljósmæðrum sem að auki eru að örmagnast vegna álags.
Það er því lífsnauðsynlegt að deiluaðilar semji sem fyrst og sú sátt þarf að leiða til þess að ljósmæður snúi aftur til starfa á Landspítala.
Góða helgi,
Páll Matthíasson