Kæra samstarfsfólk!
Nú eru rétt um tvö ár liðin frá því biðlistaátak stjórnvalda hófst. Óhætt er að segja að afar vel hafi gengið að framfylgja markmiðum átaksins sem var að ná að minnka biðtíma eftir tilteknum aðgerðum niður í þrjá mánuði á þeim þremur árum sem átakið myndi vara. Mjög vel hefur miðað í þessum mikilvægu verkefnum og höfum við þegar náð markmiðinu hvað varðar augnsteinaaðgerðir, ári á undan áætlun, en þar er nú biðtími undir 3 mánuðum. Sömuleiðis hefur vel miðað í liðskiptaaðgerðum. Við lukum þeim aðgerðum sem velferðarráðuneytið gerði ráð fyrir á árinu og gott betur enda höfðu rétt um 1.000 aðgerðir verið framkvæmdar í árslok. Allt stefnir því í að í góðri samvinnu Landspítala og stjórnvalda náist markmið átaksins innan þess tímaramma settur var. Til hamingju með þetta, öll!
Starfsáætlun fyrir árið 2018 liggur nú fyrir og er afrakstur mikillar vinnu fjölda starfsmanna. Stöðugar umbætur eru órjúfanlegur hluti af starfsemi spítalans og á árinu munum við halda áfram að styrkja öryggismenninguna samhliða áherslu á vísindastarf enda þekking og þróun grunnur starfsemi okkar. Það þarf þó engum að koma á óvart að stærsta verkefni okkar á þessu ári er að tryggja mönnun mikilvægra starfsstétta og ljóst að þar er mikið verk að vinna. Það er svo í höndum einstakra sviða að útfæra starfsáætlanir sínar til samræmis við sín verkefni og megináherslur sameiginlegrar starfsáætlunar spítalans alls.
Við höfum einnig uppfært stefnuvefinn sem kynntur var fyrir ári. Þar er að finna hnitmiðað yfirlit um stöðu, framtíðarsýn, áherslur og árangursvísa fyrir alla málaflokka stefnuþríhyrningsins Landspítala. Undirstöður stefnuþríhyrningsins - menntun, vísindastarf, húsnæði, upplýsingakerfi og fjármögnun starfseminnar - eru málaflokkar sem afar brýnt að stjórnvöld styðji við. Það var því ánægjulegt að taka í gær á móti nýjum heilbrigðisráðherra, Svandísi Svavarsdóttur, í sinni fyrstu ráðherraheimsókn á spítalann. Ráðherra fór víða um spítalann en sem þingmaður Reykvíkinga og raunar fyrrverandi starfsmaður Landspítala þekkir hún ágætlega hina fjölbreyttu starfsemi sem hér fer fram og við erum afar stolt af. Að þessu sinni var starfsemin að Tunguhálsi; þvottahús, birgðastöð og dauðhreinsun heimsótt fyrst. Því næst var haldið í hermisetur menntadeildar í Ármúla og síðan í eldhúsið við Hringbraut.. Ráðherra fundaði með framkvæmdastjórn í hádeginu um þau mál sem brenna mest á spítalanum en að því loknu voru flæðilína rannsóknarkjarna og jáeindaskanni barin augum. Deginum lauk á Laugarási þar sem hugmyndafræði snemmíhlutunar við geðrofssjúkdómum ungs fólks var kynnt. Þetta var skemmtileg og ánægjuleg heimsókn sem samskiptadeild náði að gera nokkur skil - viðtal við ráðherrann (myndskeið).
Góða helgi!
Páll Matthíasson