Skurðaðgerðir við nýrna- og þvagleiðarasteinum, sem voru áður einar algengustu aðgerðir þvagfæraskurðlækna, eru orðnar fágætar þar sem flestir steinar eru fjarlægðir með steinbrotsmeðferð eða með speglunartækni. Árið 1985 var farið að senda sjúklinga í völdum tilfellum með endurtekna nýrnasteina til Danmerkur og Svíþjóðar til steinbrotsmeðferðar með höggbylgjutækni. Fljótlega varð ljóst að steinbrotsmeðferð fylgdu miklir kostir umfram fyrri möguleika á meðferð svo sem minni óþægindi sjúklinga, minni frávera frá vinnu og veruleg fækkun legudaga.
Steinbrjótstæknin byggir á myndun höggbylgna sem eru hljóðbylgjur með mikinn styrk þannig að föst efni geta molnað. Bylgjur þessar finnast einnig í náttúrunni og myndast við eldingar, loftsteinahröp, voldugar sprengingar og við yfirhljóðhraða. Aðferðin þróaðist út frá hernaðartækni og fyrstu tækin til tilraunameðferðar voru gerð af Dornier flugvélaverksmiðjunum í Þýskalandi árið 1980.
Fyrsta steinbrotstækið var tekið í notkun á Íslandi síðla árs 1993 og nefnt Mjölnir. Síðan hafa engir sjúklingar verið sendir í steinbrotsmeðferð til útlanda. Steinbrotstækið sem nú er tekið í notkun er þriðja kynslóð slíkra tækja frá fyrirtækinu Storz Medical sem tók yfir tækjaþróun þessa frá Dornier. Uppsett kostaði það um 76 milljónir króna.
Steinbrotstækin hafa mikið þróast og batnað á þeim 37 árum sem liðin eru síðan frumgerðirnar litu dagsins ljós. Einkum er nákvæmni í meðferðinni orðin meiri. Nánast öll steinbrotsmeðferð fer fram á göngudeild og sjúklingurinn verður fyrir litlum óþægindum sem sést meðal annars á því að innlagnir eru fátíðar.
Steinbrotsmeðferðum hefur fjölgað hratt ár frá ári. Þær voru 320 hjá um það bil 250 sjúklingum árið 2016. Nýrnasteinar eru vaxandi vandamál um allan heim og tengjast að líkndum breyttum neysluvenjum.