Hjartagátt Landspítala hafa verið færðar gjafir sem keyptar voru fyrir fé sem safnaðist með jólatónleikum í Fríkirkjunni 17. desember 2015. Um 140 gestir mættu á tónleikana og söfnuðust um 340 þúsund krónur. Keypt voru m.a. þrjú 32" sjónvörp, fimm útvarpstæki ásamt heyrnartólum, örbylgjuofn, blandari, eggjasuðutæki, vöfflujárn og fleira.
Það er fastur liður í tónleikaröðinni Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni að halda styrktartónleika í desember. Að þessu sinni var ákveðið að styrkja Hjartagátt. Á tónleikunum komu fram um 30 flytjendur. Einsöngvarar voru Sigrún Hjálmtýsdóttir, Valgerður Guðnadóttir og Einar Clausen. Með þeim voru kvennakórinn Heklurnar og sjö manna hljómsveit.
Mynd: Starfsmenn Hjartagáttar ásamt deildarstjóra tóku við gjöfum frá listrænum stjórnanda tónleikaraðarinnar, Lilju Eggertsdóttur; Margrét Andrelin Axelsson, Þórhildur Jóna Einarsdóttir, Sigrún Ragnarsdóttir, Björg Sigurðardóttir og Lilja.