Alþjóða blóðgjafadagurinn 23. maí.
23. maí höldum við upp á Alþjóða blóðgjafadaginn. Dagurinn var haldinn hátíðlegur víða um lönd í fyrsta sinn árið 1995. Tilgangur með alþjóða blóðgjafadegi er að vekja athygli almennings og stjórnvalda á málefnum blóðgjafa og blóðbankaþjónustu.
Á Íslandi var fyrst haldið upp á þennan dag árið 1998 með opnu húsi. Dagurinn tókst framar björtustu vonum og má geta þess að forseti Íslands var verndari dagsins.
Alþjóða Blóðgjafasamtökin, IFBDO (International Federation of Blood Donor Organizations) sem Blóðgjafafélag Íslands BGFÍ er aðili að, ákvað að helga 23. maí ár hvert þessu málefni. Í dag halda yfir 80 þjóðlönd í heiminum upp á þennan dag.
Alþjóða Blóðgjafasamtökin voru stofnuð árið 1955 og gekk Blóðgjafafélag Íslands í samtökin árið 1998. Meðal markmiða IFBDO eru sjálfbæri (self - sufficiency) hvað varðar blóð frá sjálfboðaliðum sem þiggja ekki greiðslu fyrir (nonpaid voluntary donors). Einnig að stuðla að auknu trausti almennings á blóðframboði þjóða með því að samstilla öryggisstaðla og eftirlit með blóðgjöfum.
Alþjóða heilbrigðismálastofnunin WHO helgar árið 2000 málefnum blóðgjafa undir slagorðinu "Öruggt blóð".
Traust og örugg blóðgjöf byggir á heilbrigðum blóðgjöfum. Þeir sem njóta heilbrigðis ættu að sýna þakklæti sitt í verki og gefa sjúkum blóð.
Þriðjudaginn 23. maí verður opið í Blóðbankanum frá kl. 08 – 17. Allir sem koma og gefa blóð þann dag og það sem eftir lifir vikunnar fá rauða rós fyrir blóðgjöfina. Íslensk garðyrkja og Íslenskir blómabændur gefa blómin. Starfsmaður frá Blómagallerí Hagamel afhendir blóðgjöfum blóm 23. maí og skreytir Blóðbankann utan sem innan. Allir fá eitthvað gott með kaffinu.
Slagorð blómabænda er "Segðu það með blómum". Við segjum "Gefðu með hjartanu".