Nýlega var samið um eftirfarandi sýkla- og sveppalyf og lyf til meðferðar við lungnatrefjun í kjölfar útboða.
Samningar taka formlega gildi 1. júní nk. og gilda í tvö ár. Seinkun verður þó á innleiðingu nokkurra lyfja, vegna ríflegrar birgðastöðu fyrra samningslyfs í landinu (sjá hér neðar).
Ávinningurinn af útboðunum á ársgrundvelli er um 31 m.kr. miðað við fyrra samningsverð og um 500 m.kr. ef reiknað er miðað við skráð verð.
Athugið að nokkur lyf verða tekin í notkun síðar vegna birgðastöðu eldri samningslyfja.