Meltingarteymi - Barnaspítali
Boðið er upp á reglubundna eftirfylgni fyrir skjólstæðinga teymisins á göngudeild barna.
Hvernig er best að ná í okkur?
Tilvísanir þurfa að berast skriflega frá læknum eða hjúkrunarfræðingum til sérfræðilæknis teymisins.
Tímapantanir fyrir skjólstæðinga teymisins á göngudeild barna 20E í síma 543-3700 eða 543-3701 í samráði við starfsmenn þess.
Hagnýtar upplýsingar
Þverfaglega teymið á göngudeild barna með meltingarfærasjúkdóma leggur áherslu á að aðstoða börn og unglinga með sjúkdóma í meltingarfærum og fjölskyldur þeirra með ráðgjöf, fræðslu og stuðningi.
Boðið er upp á reglubundna eftirfylgni fyrir skjólstæðinga teymisins á göngudeild barna.
Þar hitta börnin og fjölskyldur þeirra hjúkrunarfræðing og lækni.
Á göngudeildinni fara einnig fram viðtöl við félagsráðgjafa, næringarfræðing og sálfræðing eftir þörfum hvers og eins.
- Gisela Lobers, næringarfræðingur
- Heiða D. Sigurjónsdóttir, talmeinafræðingur
- Kristín Hallgrímsdóttir, sálfræðingur
- Kristín V. Ólafsdóttir, félagsráðgjafi
- Margrét E. Baldursdóttir, hjúkrunarfræðingur
- Úlfur Agnarsson, læknir