Leit
Loka

Matsteymi Laugarássins

Matsteymi Laugarássins er sameiginlegt matsteymi fyrir Laugarásinn meðferðargeðdeild og Geðrofsteymi göngudeildar á Kleppi. Teymið er þverfaglegt og er skipað hjúkrunarfræðingum, geðlæknum, félagsráðgjöfum og sálfræðingum.

Banner mynd fyrir  Matsteymi Laugarássins

Hagnýtar upplýsingar

Hlutverk teymisins er að fara yfir allar tilvísanir sem berast og meta stöðu hvers og eins m.t.t. hvort viðkomandi uppfylli skilmerki fyrir geðrofssjúkdóm:

  • Ef viðkomandi er með byrjandi geðrofssjúkdóm og á aldrinum 18-35 ára er honum vísað áfram í þjónustu Laugarássins meðferðargeðdeildar.
  • Ef viðkomandi er með geðrofssjúkdóm og eldri en 35 ára eða hefur lokið meðferð á Laugarásnum meðferðargeðdeild er honum vísað áfram í þjónustu í Geðrofsteymi göngudeildar á Kleppi.
  • Ef viðkomandi uppfyllir ekki greiningarskilmerki, er beiðni hans í Matsteymi Laugarássins lokað og vísað aftur til tilvísunaraðila.

Hvernig kemstu í samband við Laugarásinn/Geðrofsteymi?:

Hvaða fagaðili sem er getur sent beiðni á Laugarásinn og í Geðrofsteymi .

Beiðnir fara í gegnum:

  1. SÖGU kerfið . Sjá leiðbeiningar um hvernig sótt er um í gegnum Sögukerf
  2. Með bréfpósti, sendist á Matsteymi Laugarássins - Laugarásvegi 71, 104 Reykjavík.

Leiðbeiningar - hvað skal koma fram á beiðni fyrir Laugarásinn og Geðrofsteymi:

Nánari upplýsignar veitir teymisstjóri Matsteymi. Hægt að hafa samband við Laugarásinn meðferðargeðdeild og óska eftir teymisstjóra Matsteymis s: 543-4650

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?