Líknarráðgjafateymi
Líknarráðgjafateymið er sérhæfð líknarþjónusta og sinnir ráðgjöf innan og utan Landspítala. Meginhlutverk þess er að vera heilbrigðisstarfsfólki til ráðgjafar við mat og meðferð einkenna sem koma fram í veikindum, vegna erfiðleika í samskiptum og vegna útskrifta þegar þörf er á sérhæfðri heimaþjónustu eða innlögn á líknardeild.
Hagnýtar upplýsingar
Líknarmeðferð er veitt í þeim tilgangi að bæta líðan og lífsgæði sjúklinga sem eru með langvinna og lífsógnandi sjúkdóma, t.d. krabbamein, hjarta-, lungna-, tauga-, og nýrnasjúkdóma.
Markmiðið er að fyrirbyggja og meðhöndla einkenni og vanlíðan vegna sjúkdóms og sjúkdómsmeðferðar eins snemma og auðið er. Það á einnig við um andlegar, sálrænar og félagslegar afleiðingar veikindanna.
Líknarmeðferð er hægt að veita frá greiningu sjúkdóms og samhliða annarri meðferð.
Í líknarmeðferð er áhersla lögð á:
- Samræður um stöðu sjúkdóms, hvert stefna á í meðferð og óskir sjúklings
- Að meta líðan og þarfir sjúklings og fjölskyldu
- Að fyrirbyggja og meðhöndla einkenni
- Að styðja sjúkling og fjölskyldu við að takast á við breyttar aðstæður
- Samstarf heilbrigðisstarfsfólks
Hlutverk líknarráðgjafateymis
Líknarráðgjafateymið er sérhæfð líknarþjónusta og sinnir ráðgjöf innan og utan Landspítala. Meginhlutverk þess er að vera heilbrigðisstarfsfólki til ráðgjafar við mat og meðferð einkenna sem koma fram í veikindum, vegna erfiðleika í samskiptum og vegna útskrifta þegar þörf er á sérhæfðri heimaþjónustu eða innlögn á líknardeild.
Líknarráðgjafateymið veitir einnig sjúklingum og aðstandendum beina ráðgjöf og stuðning á göngudeild og með símaeftirfylgd.
Teymið sinnir kennslu, rannsóknum og þróun á sviði líknarmeðferðar.
Beiðnir
Allar fagstéttir geta leitað til teymisins.
Beiðnir skal senda á líknarráðgjafateymi sem ,,beiðni um ráðgjöf” í Sögu. Starfmenn teymisins meta beiðnina innan sólarhrings.
Starfsmenn líknarráðgjafateymis
Arndís Jónsdóttir, sérfræðingur í líknarhjúkrun, sími 825 5115, arndisjo@landspitali.is
Katrín Edda Snjólaugsdóttir hjúkrunarfræðingur, MSc, sími 620 1518, katrinsn@landspitali.is
Kristín Lára Ólafsdóttir, sérfræðingur í líknarhjúkrun, MSc, sími 825 5114, kristinl@landspitali.is
Tölvupóstfang teymis
Aðrir í líknarráðgjafateymi
Arna Dögg Einarsdóttir, sérfræðingur í líknarlækningum
Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir, sjúkrahúsprestur
Jón Eyjólfur Jónsson, yfirlæknir bráðaöldrunarlækninga
María G Hrafnsdóttir, sérfræðingur í líknarlækningum
Nanna Friðriksdóttir, sérfræðingur í hjúkrun krabbameinssjúklinga, formaður
Thelma Hrund Guðjónsdóttir, félagsráðgjafi
Valgerður Sigurðardóttir, yfirlæknir líknardeildar og heimahlynningar í Kópavogi