Leit
Loka

Svefnmiðstöð

Meginviðfangsefni er greining og meðferð sjúklinga með svefntengda sjúkdóma.

Yfirlæknir

Jordan Cunningham

Banner mynd fyrir  Svefnmiðstöð

Hafðu samband

OPIÐ

Svefndeild - mynd

Hér erum við

Landspítali Fossvogi | | 7. hæð C-álmu (legudeild) | | 3. hæð A-álmu (göngudeild).

Hagnýtar upplýsingar

  • Tímabókun og breytingar á tímum fyrir þá sem koma í svefnmælingu (greiningu), virka daga 09:00-12:00 og 13:00-15:00 virka daga: 543 6035
  • Tímabókun eða breyting á tímum fyrir þá sem eru í meðferð með svefnöndunartæki er 13:00-15:45 virka daga: 543 6025
  • Panta eða endurnýja svefnbúnað frá 8:15 til 12:15 virka daga: 543 6025. Einnig er hægt að senda tölvupóst á svefnmidstodin@landspitali.is . Tilgreindu kennitölu, tegund grímu og stærð í tölvupóstinum.

Endurnýjun búnaðar: 

  • Til að endurnýja búnað er hægt að senda tölvupóst á svefnmidstodin@landspitali.is . Tilgreindu kennitölu, tegund grímu og stærð í tölvupóstinum. 
    Einnig er hægt að hringja milli 08:15 til 12:15 virka daga: 543 6025

  • Svefnrannsókn Landspítala í Fossvogi sinnir mælingum vegna gruns um svefntengda sjúkdóma. Næturmælingar eru gerðar vegna gruns um kæfisvefn og aðra svefnsjúkdóma.
  • Mælingar eru gerðar ýmist á legudeild C7 eða einstaklingar koma á göngudeild (A3) og fá með sér búnað sem sofið er með heima
Til þess að komast í svefnrannsókn þurfa einstaklingar að leita til síns heimilsilæknis eða sérfræðings. Læknar senda síðan beiðni/tilvísun á Svefndeild Landspítala sé talin þörf á rannsókn. Þegar beiðni hefur borist er sent bréf til viðkomandi þess efnis að hann sé komin á biðlista eftir svefnrannsókn.

Rafrænt eftirlit er fyrstu 3 mánuðina eftir að meðferð hefst. Fylgst er með árangri meðferðarinnar og hefur hjúkrunarfræðingur samband ef árangur meðferðarinnar er ekki fullnægjandi.
Ef vel gengur skal panta tíma eftir 1-2 ár á göngudeild Svefndeildar A3, þar sem farið verður yfir árangur meðferðar og lesið af minniskorti tækisins. Eftir það er eftirfylgd á 2-3 ára fresti. Hafa þarf vélina og allan búnað meðferðis þegar komið er á Svefndeildina.


Myndbönd

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?