Leit
Loka

Sjúkrahótel Landspítala

Umhyggja - Fagmennska - Öryggi - Framþróun

Þeir sem ekki eru með aðgang að rafrænni sjúkraskrá geta leitað aðstoðar við gerð beiðna í síma 590 0700Hvernig á að sækja um? Stutt myndband

Sími: 590 0700

Banner mynd fyrir  Sjúkrahótel Landspítala

Hagnýtar upplýsingar 

Sjúkrahótel Landspítala er staðsett á lóð Landspítala Hringbraut í Reykjavík.

Bílastæði í nánd við sjúkrahótelið eru gjaldskyld skammtímastæði. Sjá hér bílastæði við Hringbraut

 Gengið er inn um aðalinngang hótelsins gegnt inngangi kvennadeildar.

Inngangur í Sjúkrahótel
Landspítali rekur sjúkrahótelið og annast hjúkrunarþjónustu þess.

Smellið á myndina til að sjá staðsetningu hótelsins á Google korti:
Hér eru við á google korti


Inngangur í Sjúkrahótel

Sjúkrahótel Landspítala er á lóð spítalans við Hringbraut gegnt húsnæði kvennadeilda. Það er ætlað sjúklingum sem teljast í þörf fyrir dvöl á sjúkrahóteli í tengslum við heilbrigðisþjónustu og aðstandendum þeirra eftir því sem við á.

Sjúkrahótelið er fjórar hæðir og kjallari. Herbergi eru 75 talsins, fjölbreytt að gerð. Þar eru sérútbúin herbergi með aðstöðu fyrir hreyfihamlaða og stærri herbergi eru í boði fyrir fjölskyldur.

Í húsinu er veitingasalur, setstofur, sólstofa, starfsstöð hjúkrunarfræðinga sem og samverurými.

Sjúkrahótelið tengist deildum á Landspítala Hringbraut í kjallara með tengigöngum.

Á hótelinu er starfsmaður í móttöku allan sólarhringinn.

Greitt aðgengi er fyrir sjúklinga í alla nærliggjandi þjónustu dag-, göngu- og legudeilda við Hringbraut svo og rannsóknar og myndgreiningarþjónustu.


Sjúkrahótelið er fyrir sjúklinga og aðstandendur þeirra sem heilsu sinnar vegna þurfa að dvelja fjarri heimabyggð vegna rannsókna eða meðferðar.

Þá sem dvalið hafa á sjúkrahúsi og þurfa frekari endurhæfingu og bata fyrir heimferð.

Aðstandendur og fylgdarmenn þeirra sem sækja heilbrigðisþjónustu utan heimabyggðar.

Heilbrigðisstarfsmaður sendir beiðni fyrir hönd sjúklings um dvöl á sjúkrahótelinu.

Gestir sjúkrahótels þurfa almennt að vera sjálfbjarga, geta farið fram úr rúmi og sinnt daglegum athöfnum svo sem að klæða sig, sinna persónulegu hreinlæti og salernisnotkun og sækja mat og drykk.

Þeir þurfa að hafa lokið meðferð á legudeild og teljast í stöðugu líkamlegu og andlegu ástandi.

Gestir hótelsins hafa með sér öll hjálpartæki sem þeir þurfa svo sem hjólastóla, göngugrindur og hækjur. Sjúklingar koma með eigin lyf en geta fengið stuðning og ráðgjöf hjúkrunarfræðinga varðandi lyf og lyfjagjafir.

 

Skýringarmyndskeið um hvernig á að fylla út beiðnir í Sögu

Stuttar leiðbeiningar

  • Læknir/hjúkrunarfræðingur eða ljósmóðir fyllir út umsókn um gistingu á Sjúkrahóteli Landspítala í Heilsugátt. Allir notendur sjúkraskrár Sögu hafa einnig aðgang að Heilsugátt.
  • Hámarksdvöl á sjúkrahóteli er 21 dagur.
  • Ef Heilsugátt er ekki sýnileg í Sögu skal leita til kerfisstjóra viðkomandi heilbrigðisstofnunar.
  • Þeir sem ekki eru með aðgang að rafrænni sjúkraskrá geta leitað aðstoðar við gerð beiðna í síma 590 0700.
  • Ef Heilsugátt er ekki sýnileg í Sögu skal leita til kerfisstjóra viðkomandi heilbrigðisstofnunar.
  • Þeir sem ekki eru með aðgang að rafrænni sjúkraskrá geta leitað aðstoðar við gerð beiðna í síma 590 0700.
  
  • Hjúkrunarfræðingar sjúkrahótelsins veita hjúkrun og ráðgjöf vegna hvers konar heilsufarsvanda
  • Herbergisþrif
  • Sjúkraþjálfari kemur alla virka daga og leiðbeinir gestum
  • Kostnaður fyrir sjúklinga er kr. 1.844 á sólarhring.
  • Kostnaður fyrir aðstandendur er kr. 6.628 á sólarhring.
  • Ósjúkratryggðir einstaklingar greiða kr. 39.083 á sólarhring fyrir dvöl miðað við 1 gest í herbergi og kr. 46.521 á sólarhring ef tveir gestir eru í herbergi.
  • Innifalið er fullt fæði sem eldað er á staðnum
  • Börn sem sjúklingar greiða ekkert fyrir dvöl. Fyrsti fylgdarmaður borgar ekkert fyrir dvöl en greiðir fæðisgjald kr. 4.784 á sólarhring. Annar fylgdarmaður borgar fyrir dvöl og fæði, 6.628 á sólarhring
  • Börn sem fylgdarmenn frá 1-13 ára aldri greiða hálft fæðisgjald kr. 2.392 á sólarhring en ekkert dvalargjald.
  • Ókeypis aðgangur að Interneti á öllum herbergjum.

 

Hjúkrunarþjónusta er á sjúkrahótelinu allan sólarhringinn. Læknir eða hjúkrunarfræðingur sækir um þá hjúkrunarþjónustu sem þörf er á um leið og beiðni um dvöl á sjúkrahóteli er útfyllt. Þar er skráð hvers konar hjúkrunarþjónustu þörf er á og hver er áætlaður dvalar- og meðferðartími.

Í hjúkrunarþjónustu sjúkrahótels felst meðal annars:

  • Heilbrigðisþjónusta, ráðgjöf og stuðningur í samræmi við sjúkdómsástand og óskir gesta eða fyrirmælum meðferðaraðila
  • Skipulagning meðferðarþátta og úrræða
  • Eftirlit með sjúklingi svo sem lífsmörk og lyfjagjafir samkvæmt þörfum
  • Sáraskiptingar og meðferð skurðsára
  • Húðumhirða og blóðsegavarnir
  • Umsjón næringarinntektar
  • Byltuvarnir
  • Umhirða drena og stóma, aðstoð við úthreinsun
  • Andlegur stuðningur, nærvera og virk hlustun
  • Fræðsla og ráðgjöf
  • Samhæfing úrræða og stuðningur fyrir heimferð
  • Viðbrögð við óvæntri versnun
  • Hjúkrunarfræðingar eru bakhjarl sjúklinga á sjúkrahóteli, annast eftirlit og fræðslu. Þeir úthluta herbergjum í samræmi við þarfir sjúklings við innritun á sjúkrahótelið.

Hjúkrunarfræðingar eru bakhjarl sjúklinga á sjúkrahóteli, annast eftirlit og fræðslu. Þeir úthluta herbergjum í samræmi við þarfir sjúklings við innritun á sjúkrahótelið.


Í veitingasal á jarðhæð er borinn fram heitur matur í hádegi og á kvöldin.

Afgreiðslutími:

Virkir dagar

  • Morgunverður kl. 08:00-09:30
  • Hádegisverður kl. 12:00-13:30
  • Kvöldverður kl. 17:30-19:00

Helgar

  • Morgunverður kl. 08:30-10:00
  • Hádegisverður kl. 12:00-13:30
  • Kvöldverður kl. 17:30-19:00

Veitingasalur sjúkrahótelsins þjónustar eingöngu innritaða gesti hótelsins.

Ekki er hægt að panta mat á herbergi nema við sérstakar aðstæður í samráði við hjúkrunarfræðinga.


Á sjúkrahótelinu er boðið upp á einbýli með tveimur rúmum og geta aðstandendur eða fylgdarmenn sjúklinga dvalið hjá þeim á herbergjum gegn gjaldi. Öll herbergi eru með sjónvarpi, síma og öryggishólfi. Hótelið er reyklaust.

Panta má herbergi með aðgengi fyrir hjólastóla auk þess sem eitt herbergi er sérútbúið fyrir mikið hreyfihamlaða, með lyftu í lofti yfir rúmi yfir á salerni og möguleika á að tengja aðliggjandi herbergi fyrir fylgdarfólk jafnt sem fjölskyldu.

Salernisaðstaða inni á herbergjum:
Salernisaðstaða inni á herbergjum. Sérútbúið sjúklingaherbergi með lyftu á milli rúms og baðherbergi

Sérútbúið sjúklingaherbergi með lyftu á milli rúms og baðherbergi:
Sérútbúið sjúklingaherbergi með lyftu á milli rúms og baðherbergi

Í hverju herbergi eru tvö einbreið rúm:
Í hverju herbergi eru tvö einbreið rúm, sem hægt er að hafa samfest eða aðskilin. Hægt er að óska eftir ungbarnarúmi aukalega.

Í hverju herbergi eru tvö einbreið rúm sem hægt er að hafa samfest eða aðskilin. Hægt er að óska eftir ungbarnarúmi aukalega.

Rúmgott salerni með sturtu og sturtustól er í öllum herbergjum. Hjúkrunarfræðingar úthluta sérbúnum herbergjum með hjólastólaaðgengi eða sérhæfðum búnaði í samræmi við þarfir hverju sinni.

Búnaður:

  • Lesljós
  • Ísskápur
  • Sjónvarp
  • Hárþurrka
  • Sími
  • Þráðlaust net
  • Neyðarbjalla
  • Salerni
  • Sturta
  • Sturtustóll

Herbergi sjúklinga:
Herbergi sjúklinga

Sameiginleg aðstaða gesta

Á sjúkrahóteli eru tvær setustofur eða samvistarrými með eldhúskrók. Sólstofa er á 4. hæð með fallegu útsýni yfir borgina og kyrrðar- og næðisrými er á 3. hæð. Í eldhúskrók er örbylgjuofn, hitakanna, eldavél og ofn.

Kyrrðar- og næðisrými á 3. hæð:
Kyrrðar og næðisrými á þriðju hæð.

Sólstofa á 4. hæð:
Sólstofa á fjórðu hæð

 

 

  • Herbergi eru þrifin einu sinni í viku
  • Handklæðum skipt út þriðja hvern dag
  • Skipt er á rúmum vikulega

Á sjúkrahóteli eru sömu heimsóknartímar og annarsstaðar á Landspítala. Sjá almennann heimsóknartíma fyrir allan spítalann

Hafa þarf í huga að dvöl á sjúkrahóteli er hluti af batarferli sjúklinga og því mikilvægt að tryggja að þar sé friðsælt og virðing í hávegum höfð fyrir hvíldarþörf þeirra sem þar dvelja. Ró sé komin á í húsinu kl. 22:00.


Sjúkrahótelið fékk fékk 81% stiga í hönnunarvottun hússins og hlaut því svokallaða „Excellent“ einkunn samkvæmt BREEAM kerfinu. Er þetta hæsta einkunn sem bygging hefur fengið í BREEAM hönnunarvottun á Íslandi.

Horft var til umhverfisstjórnunar, heilsu og vellíðunar, orku, samgangna, vatns, byggingarefna, úrgangs, landnotkunar, vistfræði og mengunar. Sérstaklega var hugað að atriðum sem bættu innivist byggingarinnar, einkanlega hvað varðar loftgæði og val á byggingarefnum eins og gólfefnum, loftaefnum, málningu, lími og lökkum. Slík byggingarefni innihalda undir ákveðnum mörkum af rokgjörnum lífrænum efnum t.d. formaldehíði. Framkvæmdin skoraði hátt í aðgengi að vistvænum samgöngum svo sem góðri aðstöðu fyrir hjólandi og rafbílastæðum. Öruggar göngu- og hjólaleiðir verða einnig á Landspítalalóðinni.

Ítarefni um verkefnið, orkunotkun og aðra þætti sjálfbærnivottunar BREEAM má finna á vef Framkvæmdasýslu ríkisins.

Unnið er að úttekt á fullnaðarvottun.

Sjúkrahótel

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?