Leit
Loka

Fjárhagsbókhald

Allir reikningar vegna kaupa Landspítala á vöru og þjónustu skulu vera sendir með rafrænum hætti í gegnum skeytamiðlun.

Banner mynd fyrir  Fjárhagsbókhald

Hagnýtar upplýsingar

 

Sýna allt

Allir reikningar vegna kaupa Landspítala á vöru og þjónustu skulu vera sendir með rafrænum hætti í gegnum skeytamiðlun. Reikning skal gefa út samkvæmt gildandi tækniforskrift Staðlaráðs fyrir rafrænan reikning, TS-236 sem er samhæfð evrópska staðlinum CEN EN-16931 og PEPPOL BIS. Eldri tækniforskrift NES er fallin úr gildi

Pappírsreikningar sem eru útgefnir munu verða endursendir og kallað eftir rafrænum reikningum.

Ekki er tekið við PDF reikningum í gegnum tölvupóst.

Greiðsluseðill eða innheimtukrafa er ekki reikningur.

Aðilum sem eru án bókhaldskerfis er bent á að á markaði eru ýmis bókhaldskerfi sem rekstraraðilar geta nýtt sér til að gefa út rafræna reikninga og halda utan um sitt bókhald. Einnig býður Fjársýslan upp á einfalda skráningarsíðu þar sem hægt er að skrá reikning og senda til ríkisstofnunar. https://skuffan.is/gattir/fjs

  • Lýsing á vöru eða veittri þjónustu
  • Númer pöntunar, kostnaðar viðfangsnúmer eða verknúmer+verkþáttur.
  • Bankareikninga, svo hægt sé að greiða með millifærslu.
  • Uppfylli reikningurinn ekki skilyrði áskilur Landspítalinn rétt á að endursenda hann.

Gjaldfrestur er almennt líðandi mánuður plús 30 dagar frá afhendingu vöru/þjónustu. Þó að lágmarki 25 dögum frá afhendingu reiknings hjá skeytamiðlara.

Landspítali greiðir reikninga með millifærslu.


Kreditreikningar þurfa að berast rafrænt í gegnum skeytamiðlara og tilgreina þarf á kreditreikningum eftirfarandi:

  • Ástæða leiðréttinga
  • Númer áður útgefins reiknings
  • Ef númer reiknings liggur ekki fyrir t.d. vegna vöruskila þá þarf að koma fram eitthvað af eftirtöldu; kostnaðar viðfangsnúmer, pöntunarnúmer eða verknúmer+verkþáttur.

 

Reglur Landspítala byggja á viðskiptaskilmálum ríkisins.

Fjárhagsbókhald: Skaftahlíð 24, 2h. Norðurhús. Sími: 543 1212
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?