Leit
Loka

Hápunktar ráðstefnunnar Dagur byltuvarna 2023

Í tilefni af alþjóðlegum degi byltuvarna 22. september 2023, stóð Landspítali ásamt samstarfsaðilum fyrir ráðstefnu með yfirskriftinni „Byltuvarnir ábyrgð okkar allra“. Ráðstefnan sem var opin öllum, var þverfagleg með áherslu á að ná fram heildrænni nálgun í byltuvörnum. Á ráðstefnunni var sagt frá ýmsum nýjungum og nýbreytni á sviði byltuvarna, kynntar voru niðurstöður rannsókna og málefni byltuvarna rædd frá ýmsum hliðum.

Dagskrá

Ráðstefnan var haldin í samstarfi eftirfarandi stofnana og félaga: Landspítala, Sjúkrahússins á Akureyri, Rannsóknarstofa Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunar- og bráðafræðum, Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu, Beinverndar og Öldrunarfræðafélags Íslands.
Ráðstefnan var styrkt af REKSTRARVÖRUM, ÖRYGGISMIÐSTÖÐINNI, FASTUS, SECURITAS og STUÐLABERGI.

Myndbönd frá ráðstefnunni

  1. Formleg setning á degi byltuvarna: Alma Möller landlæknir 
  2. Að halda jafnvægi: Hannes Petersen háls-, nef- og eyrnalæknir, prófessor við læknadeild HÍ
  3. Lyf sem áhættuþáttur byltna: Alma Möller landlæknir 
  4. Svefn á efri árum: Erla Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Betri svefns 
  5. Byltur og vímuefnaneysla aldraðra - Drekkandi og dettandi: Eyþór Jónsson læknir, öldrunar- og endurhæfingarsviði Landspítala
  6. Breyting á mati á byltuhættu í sjúkraskrá á landsvísu: Bergþóra Baldursdóttir, verkefnastjóri byltuvarna á Landspítala
  7. Samvinna heilsugæslu og göngudeilda fyrir aldraða: Jórlaug Heimisdóttir frá Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu
  8. Ný þjónusta fyrir aldraða sem hljóta mjaðmabrot eftir byltu: Kolbrún Kristiansen, sérfræðingur í hjúkrun á Landspítala
  9. Byltuvarnir á Landspítala og innleiðing verklags á hjartadeild: Bergþóra Baldursdóttir, verkefnastjóri og sérfræðingur í sjúkraþjálfun, Auður Ketilsdóttir og Kristjana Rúnarsdóttir, hjúkrunarfræðingar á hjartadeild 
  10. Grípum brotin: Unnur Björnsdóttir geislafræðingur, Landspítala 
  11. Hefur mjólkurneysla áhrif á mjaðmabrotatíðni? Sigrún Sunna Skúladóttir, lektor við HÍ
  12. Bjartur lífsstíll - Er fjölbreytt hreyfing í boði? Ásgerður Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari 
  13. Hlutverk þjálfunar í byltuvörnum: Steinunn Bára Birgisdóttir og Birgitta Þóra Birgisdóttir íþrótta- og heilsufræðingar
  14. Áhrif fjölþættrar heilsueflingar á jafnvægi hjá eldri aldurshópum: Hanna Bedbur íþrótta- og heilsufræðingur 
  15. Lokaorð frá fundarstjóra: Ásta Valdimarsdóttir


Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?