Þriðji fundurinn í fundaröðinni Heilsan okkar verður föstudaginn 28. mars kl. 11:30 – 13:00.
Líðan barna og unglinga hefur verið mikið í umræðunni undanfarið og því hefur oft verið haldið fram að geðheilsu íslenskra ungmenna fari hrakandi. Á þessum fundi í fundaröðinni Heilsan okkar verður fjallað um nýjustu kannanir á líðan íslenskra unglinga, skipulag og nýtingu geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi síðustu misseri, lyfjanotkun og sjálfsvíg, auk þess sem farið verður yfir raunprófaðar forvarnir og foreldrum gefin hagnýt ráð.
Dagskrá:
- Þórhildur Halldórsdóttir, dósent, Sálfræðideild HR - Andleg heilsa ungmenna fyrir og eftir heimsfaraldur.
- Guðrún Bryndís Guðmundsdóttir, yfirlæknir, Geðheilsumiðstöð barna- Geðheilbrigðisþjónusta fyrir börn og unglinga á Íslandi í dag, áskoranir og framtíðarsýn.
- Bertrand Andre Marc Lauth, dósent, Læknadeild HÍ - Geðlyfjanotkun, sjálfsvígshegðun, skólaforðun og aðrir geðheilbrigðisvísar hjá börnum og unglingum.
- Urður Njarðvík, prófessor, Sálfræðideild HÍ - Geðheilsa barna og unglinga: Árangursríkar forvarnir og hagnýt ráð fyrir foreldra.
Um Heilsuna okkar
Funda- og viðburðaröðin Heilsan okkar er hugsuð sem samtal almennings, fagfólks og fræðafólks um heilsutengd málefni og verða viðburðir öllum opnir og þeim verður einnig streymt beint á netinu hér.
Fundirnir eru samstarfsverkefni HÍ og Landspítala.